Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma. Spurði Jens Garðar hvort hún myndi, í ljósi þess að þjóðin hafi hafnað aðildarviðræðum og að Flokkur fólksins hafi ítrekað lagt fram tillögu um sama efni, styðja tillögu formannanna.
Inga sagðist telja að það væri eðilegasti hlutur í heimi en hún myndi þó ekki gera það.
„Nú er ég hér í ríkisstjórn með tveimur öðrum flokkum og við höfum í engu sett þetta á okkar stefnuskrá.“
Inga rifjaði upp í síðara svari sínu að á þeim tíma þegar Flokkur fólksins lagði til að aðildarumsóknin yrði dregin tilbaka hafi verið vafi á því hvort hún væri yfir höfuð í gildi. Tillögurnar hafi verið lagðar fram til að fá úr því skorið og kvaðst hún ekki muna að Jens Garðar né aðrir þingmenn hafi viljað styðja hana þá.
Endurtekið efni eftir fyrirspurnir
Það er orðinn fastur liður að loknum fyrirspurnartíma að þingmenn stjórnarandstöðunnar komi upp og kvarti undan því að ráðherrar svari ekki spurningum. Engin breyting var á því í dag og nú varð það Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sem reið á vaðið.
Lýsti hann yfir óánægju með svör Ingu.
„Ráðherrar fást ekki einu sinni til að gefa upp afstöðu sína lengur. Þeir vilja ekki segja hvaða skoðun þeir hafa á grundvallarmálum, jafnvel málum sem þeir hafa ítrekað árum saman lýst skoðun á og þá koma svör eins og frá ráðherra um að nú sé hann kominn í ríkisstjórnunum ráðherra og þá skiptu skoðanir engu máli.“
Sigurjón Þórðarson kom formanni sínum til varnar og lagði einfaldlega til að Sigmundur Davíð haldi námskeið fyrir ráðherra um hvernig svara eigi spurningum.
„Því hann virðist einn vita hvernig eigi að svara spurningum hérna.“