Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Tvö meginríki ESB-Evrópu, Frakkland og Þýskaland, standa á tímamótum, þótt ólík séu. Frakkland logar í óeirðum vegna efnahagsástands sem engar líkur eru á að fari batnandi. Í Þýskalandi er pólitísk umpólun. AfD, Valkostur fyrir Þýskaland, er á sigurbraut og verður leiðandi afl í þýskum stjórnmálum næstu árin.
Íslenskt nei við ESB-umsókn 29. ágúst bjargaði þjóðinni frá aðild að brennandi húsi ESB-Evrópu.
Hrapandi lífskjör eru frumhvöt mótmælanna í Frakklandi. Hópar vinstrimanna og innflytjenda standa fyrir óeirðum sem gera illt verra. Ríkisútgjöld, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, eru hvað hæst í Frakklandi af öllum ríkjum Evrópu, rúm 57 prósent. Til samanburðar er hlutfallið tæp 47% fyrir Ísland og er nokkru lægra í Bretlandi. Norðurlöndin, að Finnlandi slepptu, eru með 50% hlutfall og þar fyrir neðan. Þegar ríkisgeirinn er jafn stór og í Frakklandi er óvinnandi vegur að snúa hallarekstri við nema með róttækum niðurskurði á ríkisvelferð er bitnar á öllum almenningi.
Ekki sér fyrir endann á mótmælaóeirðum í Frakklandi. Útgöngubann er sett í borgum landsins, sem þýðir að stríðsástand ríkir. Útflutningi á frönskum óeirðum til Ítalíu er mætt með hervaldi og neyðarlögum með hörðum viðurlögum. Hvort óöldin varir lengur eða skemur er ekki aðalatriðið. Heldur hitt að samfélagsófriðurinn í Frakklandi heggur að rótum Evrópusambandsins. Frakkar geta ekki skorið niður ríkisútgjöld vegna hættu á innanlandsófriði. En þeir geta heldur ekki haldið áfram á sömu braut, það endar með gjaldþroti. Evran, sem gjaldmiðill, þolir ekki franskt ríkisgjaldþrot.
Þjóðverjar sitja í súpunni í tilfelli þjóðargjaldþrots Frakka. Í því ljósi ber að skoða tillögur AfD, Valkosts fyrir Þýskaland, um framtíð Evrópusambandsins. AfD vill afbyggja Evrópusambandið í núverandi mynd. ESB verði samband þjóðríkja, ekki drög að sambandsríki. Kosningar til Evrópuþingsins verði afnumdar. Lagasetningavald, sem framkvæmdastjórnin í Brussel fer með, verði þaðan tekið og sett í hendur ráðherraráðsins. Síðast en ekki síst; Þýskaland fá aukin áhrif í Seðlabanka Evrópu sem hafi aðeins eitt hlutverk, að hemja verðbólgu. Það liggur í orðum Alice Weidel, formanns AfD, að úrsögn Þjóðverja úr evru-samstarfinu sé valkostur.
ESB-sinnar hér á landi notuðu ítrekað þau rök í kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB-umsókn að aðild að Evrópusambandinu væri leið Íslands til hagsældar og efnahagslegs stöðugleika. Nú segja ESB-sinnar að ástæðan fyrir stríðsástandi í Frakklandi og ófriðarhorfum í öðrum meginlandsríkjum sé léleg lífskjör. Var meiningin að skera niður lífskjör á Íslandi með aðild að ESB?
Opingáttarstefna í útlendingamálum er sannanlega hluti óeirðanna í Frakklandi og víðar í álfunni. Útlendingar frá framandi menningarheimum virða hvorki þjóðleg verðmæti gistiríkisins né lög og reglu. Gömul saga og ný. Í þessari umræðu er framlag ESB-sinna hér á landi að stimpla samlanda sína rasista.