Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.
Er til tilfinningaleg stéttaskipting?
Sú spurning kviknar við lestur nýju bókarinnar hans Guðbrands Árna sem er sjálfstætt starfandi, menntaður í Árósarháskóla þar sem hann lauk embættisprófi í sálfræði árið 1999 en til hans hefur fjöldi fólks leitað í sálfræðitíma í gegnum tíðina, bæði einstaklingar og pör.
Á mannamáli útskýrir hann í þessari bók hvernig reynsla barns af ást og ástleysi, ekki síst úr frumbernsku, mótar hugmyndir þess um ástina. Hugmyndir sem lesa má úr tengslamynstri viðkomandi, en rannsóknir síðustu áratugina á eðli tengsla hafa „leitt í ljós að það grunnmynstur sem barn þróar með sér á fyrstu æviárunum gengur í endurnýjun lífdaga í þeim nánu samskiptum sem einkenna ástarsambandið“.
Í því sambandi segir í bókinni: „Ef þú ert hamingjusöm manneskja, og hver óskar sér þess ekki, er það af því að ýmsir í kringum þig hafa komið fram við þig af gæsku og hugulsemi, með öðrum …