Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.
Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að fjármagnið verði nýtt til að styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, sem felst í að byggja upp 100 tonna árlega framleiðslu á abalónum. Aurora Abalone rekur eina abalónueldi Íslands í Grindavík og á Reykjanesi.
Abalónur, sem einnig eru þekktar undir nafninu sæeyra eða gliteyra, eru skelfiskur. Þær teljast til sælkeraafurða og eru vinsælar í japanskri matargerð.
Aurora Abalone byggir á áratugalöngu rannsóknar- og þróunarstarfi. Félagið rekur hlýsjávarlandeldi í Grindavík og í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Eldið nýtir hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með affallssjó frá jarðvarmavirkjun og sjávarsalat sem ræktað er á staðnum er hluti af fóðri dýranna, segir í tilkynningunni.
Richard K. Dulaney er forstjóri félagsins. „Aurora Abalone hefur skref fyrir skref síðustu áratugi ræktað og þróað einstaka afurð. Við erum með öflugt og reynslumikið alþjóðlegt teymi og teljum góða vaxtarmöguleika fram undan. Nú einbeitum við okkur að því að halda fast utan um fjárfestinguna, samhliða því sem við byggjum upp traust viðskiptasambönd og mætum eftirspurn með aukinni og sjálfbærri framleiðslu,“ er haft eftir Richard í tilkynningunni.
Hlutafjáraukningin var leidd af Dorg, Eyri, ReykVC, Kili fjárfestingarfélagi og Trøndelag Helgeland Invest ásamt einkafjárfestum. Arctica Finance og BBA//Fjeldco voru ráðgjafar félagsins við fjármögnunina.
Eldisstofn Aurora Abalone hefur verið byggður upp í áratugi úr japönskum stofnum frá Hokkaido, Iwate og Miyagi. Félagið ræktar Ezo-abalónur sem eru blendingar af Ezo- og rauðri abalónu.
Hjá félaginu starfa 11 manns. Aurora Abalone undirbýr nú nýja eldisstöð í Auðlindagarði HS Orku sem verður stærsta abalónueldisstöð Evrópu og byggir upp markaði fyrir afurðir sínar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu, segir í tilkynningunni.