Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrirtækið OpenAI lausnir á hundruðum áður óleystra stærðfræðivandamála. „Ef gervigreindin er komin svo fram úr okkur að hún bæði býr til niðurstöðurnar og er betri í að túlka þær fyrir okkur þá er nú lítil ástæða fyrir okkur að vera til einhvern veginn,“ sagði Sigurður Freyr Hafstein, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands, í samtali við RÚV.
Þeir sem óttast að allur leyndardómur sé horfinn úr veröldinni þurfa þó ekki að örvænta. Eftirfarandi er ekki aðeins listi yfir sjö af stærstu ráðgátum veraldar heldur einnig staðfesting þess að stöðugt bætast nýjar í hópinn.
1) Hvers vegna dó fólk við að dansa?
Árið 1374 breiddist dularfull plága milli bæja Rínardalsins. Á götum úti engdist fólk um í stjórnlausum dansi. Plágan breiddist um Evrópu og heltók heilu landsvæðin uns hún fjaraði út nokkrum mánuðum síðar.
Árið 1518 skaut hún aftur upp kollinum þegar kona að nafni „frau“ Troffea hóf að stíga trylltan dans á götu í Strassborg. Dansæði rann á mörg hundruð konur, karla og börn. Borgaryfirvöld gripu til þess ráðs að reisa danspalla og ráða hljóðfæraleikara til að hjálpa fólki að dansa æðið úr sér. Ráðstöfunin gerði aðeins illt verra. Slys urðu á fólki og fjöldi manns lét lífið áður en yfir lauk.
Samtíðargreinendur kenndu djöflinum, guði og dýrlingum um dansæðið. Síðar skutu upp kollinum kenningar um að sveppur hefði komist í hveiti og valdið ofskynjunum. Sálfræðingar telja nú að um hafi verið að ræða „hópsýking af sálrænum toga“.
Enginn veit þó nákvæmlega hvað olli dansæðinu í Evrópu á miðöldum.
2) Hver er höfundur Njálu?
Erfitt er að ímynda sér að nokkur komist í gegnum daginn án þess að leiða hugann að þessari helstu ráðgátu bókmenntasögunnar.
En þótt spurningunni sé enn ósvarað þarf ekki svo að vera um aldur og ævi.
Árið 2023 leystu spænskir vísindamenn með aðstoð gervigreindar aldagamla gátu um höfund dularfulls leikrits sem varðveitt var á Landsbókasafni Spánar. Höfundur þess reyndist stórskáldið Lope de Vega, sem uppi var á 17. öld.
3) Hvað ætlarðu að fá þér í hádegismat?
Valdi sú spurning þér hugarangri skaltu varast þessa: Hvað er hulduefni?
Talið er að um 85% af öllu efni í alheiminum sé svonefnt hulduefni, efni sem við sjáum ekki og vitum ekki hvað er en mælingar benda til að sé til staðar.
Valið milli samloku og súpu virðist allt í einu eitthvað svo léttvægt.
4) Hver er Satoshi Nakamoto?
Okkur finnst mörgum veröldin alltaf hafa verið eins og hún er akkúrat núna.
Ekki er hins vegar langt síðan nöldurseggir Facebook fundu lífsfyllingu í því að amast við allt annarri tækni en gervigreind.
Árið 2008 birtist grein undir dulnefni á internetinu eftir mann sem kallaði sig Satoshi Nakamoto. Greinin varð grundvöllur rafmyntarinnar Bitcoin.
Tæknin var ekki aðeins vatn á myllu áhættufjárfesta heldur einnig dómsdagsspámanna.
Enn veit þó enginn hver Satoshi Nakamoto er í raun og veru.
5) Hvarf í ellefu daga: Hvað gerðist?
Í desember næstkomandi er öld liðin frá dularfullu hvarfi rithöfundarins Agöthu Christie.
Að kvöldi 3. desember 1926 kyssti Christie dóttur sína góða nótt, settist upp í bifreið og ók á brott.
Næsta dag fannst bíll hennar yfirgefinn. Kveikt var á framljósunum. Kápan hennar lá í aftursætinu. Rithöfundurinn, sem þekkt var fyrir ráðgátur sínar, var á bak og burt.
Í kjölfarið upphófst umsvifamesta lögregluleit sem gerð hafði verið í Bretlandi; meira en þúsund lögreglumenn kembdu sveitir með aðstoð mörg þúsund sjálfboðaliða.
Ekkert spurðist til Christie fyrr en ellefu dögum síðar þegar hún fannst á hóteli þar sem hún dvaldi undir dulnefni. Dulnefnið var eftirnafn hjákonu eiginmanns hennar.
Christie kvaðst ekki muna hvað hafði gerst þá ellefu daga sem hennar var leitað.
Hvað olli hvarfinu? Svarið tók Christie með sér í gröfina.
6) Er líf á öðrum hnöttum?
Árið 2024 fann könnunarbíll NASA dularfullan stein í uppþornuðum árfarvegi á Mars. Steinninn var þakinn blettum sem minntu á feld hlébarða. Rannsóknir bentu til að þeir gætu hafa myndast við starfsemi örvera fyrir milljörðum ára.
Vísindamenn telja fundna eina haldbærustu vísbendingu til þessa um að líf geti hafa þrifist á öðrum hnöttum.
7) Það sem enginn veit
Eðlisfræðingar halda því fram að alheimurinn fari stækkandi.
Í stöðugt stækkandi veröld skapast æ meira svigrúm fyrir ráðgátur.
Sú nýjasta varð til hér á Íslandi í síðustu viku: Hvers vegna sagði Jón Gnarr sig úr þingflokki Viðreisnar?
Enginn veit.