Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Nýstirni í skáldsagnaheiminum hefur orðið fyrir aflýsingu eftir að gervigreind greindist í margrómuðu verki hans. Sjálfur segist hann að gervigreind hafi ekki verið til þegar hann lauk fyrsta uppkasti.
Útgefandi hins vinsæla haítíska-kanadíska rithöfundar Thelyson Orelien sagði í dag að staðfest hefði verið að hann notaði gervigreind við skrif skáldsögunnar „It Was Either That or Die“.
Orelien hefur neitað því að hafa notað gervigreind við skrif bókarinnar, sem vakti mikla athygli og markaði tímamót á ferli hans. Í síðustu viku sagðist kanadíska útgáfufyrirtækið Boreal standa með hinum 38 ára rithöfundi.
Í dag greindi Boreal hins vegar frá því að fyrirtækið hefði rannsakað ásakanirnar frekar.
„Nýjar upplýsingar, sem hafa verið staðfestar undanfarna daga, benda til þess að gervigreind hafi verið notuð við skrif“ skáldsögunnar, sagði í yfirlýsingu Boreal.
Útgefandinn tilkynnti að hann hefði „slitið faglegu samstarfi“ við Orelien.
Boreal sagðist ekki vita hversu mikið gervigreind hefði verið notuð við skrifin „og líklega fáum við aldrei endanlegt svar“.
Útgefandinn sagðist hafa aflað allra vinnuútgáfa skáldsögunnar og fengið utanaðkomandi aðila til að greina drögin.
…