Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Fasteignamarkaðurinn var með daufasta móti í lok sumars, raunar svo mjög að þinglýstir kaupsamningar höfðu ekki verið jafn fáir síðan 2014 eins og þeir voru í ágúst. HMS segir að nokkurrar viðspyrnu hafi orðið vart í september en salan hafi þó enn verið lítil miðað við síðustu ár.
Fasteignakaupendur sækja meira í verðtryggð lán en áður en óverðtryggðu lánin eru þó enn í meirihluta hreinna nýrra útlána. Fastir vextir eru allsráðandi.