Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir

Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir

Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir

Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill í Mið-Afríkulýðveldinu, þar sem Wagner hélt samningum sínum eftir að forseti landsins biðlaði sérstaklega til ráðamanna í Rússlandi um að skipta honum ekki út.

Þrátt fyrir að Pavel hafi verið álitinn ofdekraður glaumgosi, þykir hann hafa staðið sig vel við stjórn Wagner og er áætlað að tekjur Prígósjínsveldisins séu rúmar fjögur hundruð milljónir dala á mánuði. Það samsvarar um 48,5 milljörðum króna.

Þar af fær Pavel um 250 milljónir frá stærstu gullnámu Mið-Afríkulýðveldisins, sem hann stjórnar og verndar en hann deilir tekjunum með ríkisstjórn Faustin-Archange Touadéra.

Wall Street Journal birti á dögunum ítarlega umfjöllun um Pavel og það hvernig hann hefur haldið leyfunum að veldi föður síns saman.

Smákrimmi, kokkur og stríðsherra

Jevgení Prígósjín var á árum áður kallaður kokkur Vladimírs Pútín. Þeir kynntust í Pétursborg á árum áður, þegar Pútín var aðstoðarborgarstjóri þar. Prígósjín ólst upp í borginni en hann endaði í fangelsi fyrir rán og aðra glæpi. Þaðan slapp hann árið 1990 og hóf veitingarekstur.

Á tíunda áratug síðustu aldar opnaði hann veitingastaði í Pétursborg og þar á meðal veitingastaðinn New Island Restaurant, sem er á báti. Þar hefur Pútín snætt með erlendum erindrekum og stjórnmálamönnum eins og Jacques Chirac, fyrrverandi forseta Frakklands, og George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Pútín hélt minnst einu sinni upp á afmæli sitt á veitingastaðnum.

Seinna gerði Prígósjín svo umfangsmikla samninga við rússneska ríkið, sem snerust meðal annars um það að fyrirtæki hans framleiddu mat fyrir skólabörn í Moskvu og rússneska hermenn.

Þann auð sem hann safnaði sér notaði hann svo til að koma að stofnun Wagner-hópsins og til að stofna hina svokölluðu „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg, þar sem starfsmenn hans dreifðu áróðri og upplýsingaóreiðu.

Sjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg

Wagner-hópurinn var að mestu skipaður fyrrverandi hermönnum og starfaði í Mið-Austurlöndum og Afríku. Starfsemin fór fram með samþykki og stuðningi rússneska ríkisins og var málaliðahópurinn lengi kallaður „skuggaher Rússlands“.

Prígósjín samdi við ríkisstjórnir í Afríku um að verja þær og berjast gegn uppreisnar- og vígahópum í skiptum fyrir reiðufé og aðgang að náttúruauðlindum eins og gulli, timbri og demöntum.

Sjá einnig: Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner

Eftir innrásina í Úkraínu kom Prígósjín Pútín og varnarmálaráðuneytinu til aðstoðar og réði þúsundir málaliða og fanga úr rússneskum fangelsum til að taka þátt í innrásinni. Þegar mest var réði Prígósjín yfir tugum þúsunda málaliða og græddi á tá og fingri vegna samninga sinna og starfsemi Wagner í Afríku.

Uppreisn og dauði

Að endingu varð Prígósjín þó ósáttur vegna lítils stuðnings sem hann taldi sig fá frá varnarmálaráðuneytinu. Sumarið 2023 gerðu málaliðar hans uppreisn gegn ráðuneytinu og Sergei Shoigu varnarmálaráðherra, lögðu undir sig borgina Rostov í suðurhluta Rússlands.

Þegar Pútín lýsti yfir stuðningi við Shoigu settu málaliðar Wagner stefnuna á Moskvu.

Skömmu áður en málaliðar hans náðu til Moskvu hætti Prígósjín við uppreisnina og gerði hann samkomulag við Pútín, með milligöngu Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús. Samkvæmt þessu samkomulagi átti öryggi Prígósjíns að vera tryggt.

Jevgení Prígósjín dó þegar flugvél hans sprakk í háloftunum skammt frá Moskvu árið 20023. Sonur hans leiðir nú Wagner-málaliðahópinn sem starfar enn í Mið-Afríkulýðveldinu.EPA/SERGEI ILNITSKY

Yfirvöld í Rússlandi fóru fljótt að taka yfir starfsemi Wagner í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneytið og leyniþjónusta rússneska hersins, sem kallast GRU, réðu marga af málaliðum Wagner og stjórnendum og stofnuðu Afríkudeildina svokölluðu í staðinn.

Afríkudeildinni hefur ekki vegnað jafn vel og Wagner gerði í vesturhluta Afríku. Þar hafa uppreisnar- og vígahópar gert tíðar og umfangsmiklar árásir gegn yfirvöldum. Í Níger gerðu hermenn fyrr á árinu uppreisn vegna slæms öryggisástands þar í landi.

Sjá einnig: Afríkudeildin bjargaði her­foringja­stjórninni

Prígósjín lagði mikið kapp á að halda veldi sínu saman og var hann á ferð og flugi um Afríku og Mið-Austurlönd.

Sjá einnig: Síðustu dagar Prígósjíns

Í ágúst 2023 flaug hann til Moskvu, þar sem Prígósjín fundaði með embættismönnum um stöðu Wagner. Eftir þá fundi lagði hann svo af stað aftur til Pétursborgar með sínum nánustu ráðgjöfum.

Skömmu eftir flugtak sprakk sprengja um borð í flugvélinni og hún hrapaði til jarðar. Allir um borð dóu.

Síðan þá hafa borist fregnir af því að Níkólaí Patrúsjev, hægri hönd Pútíns, hafi komið að því að skipuleggja banatilræðið.

Hélt starfseminni í Mið-Afríkulýðveldinu

Þá fóru mismunandi fylkingar að berjast um hræ Prígósjín-veldsins. Leiðtogar GRU vildu koma höndum yfir Wagner og leiðtogar SVR, leyniþjónustu Rússlands sem starfar á erlendri grundu, vildu og hafa eignast „Tröllaverksmiðjuna“.

Pavel Prígósjín var 25 ára gamall og vildu margir af málaliðum Wagner að hann tæki við stjórn hópsins.

Það fyrsta sem hann gerði var að fara til Mið-Afríkulýðveldisins og hitta þar yfirmenn Wagner í landinu, auk þess sem hann fundaði með háttsettum embættismönnum.

Í september 2023, skömmu eftir dauða Prígósjíns, sagði Faustin-Archange Touadéra, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, að varnarmálaráðuneyti Rússlands myndi taka yfir stjórn á Wagner-hópnum þar í landi. Sagðist hann hafa gert samkomulag við Pútín.

Nú segir WSJ að Touoadéra hafi samið við Pútín um að leyfa Pavel Prígósjín að halda áfram að stjórna Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu. Samstarf ríkisstjórnarinnar við málaliðahópinn hefði lukkast vel og hann vildi halda því áfram.

Faustin Archange Touadera, forseti Mið-Afríkulýðveldisins, er sagður hafa beðið Vladimír Pútín um að leyfa Wagner-hópnum að starfa áfram þar í landi. Starfsemi málaliðahópsins var að öðru leyti tekin yfir af varnarmálaráðuneyti Rússlands.EPA/ALEXANDER ZEMLIANICHENKO

Touadéra er sagður hafa hjálpað Pavel Prígósjín að halda stjórn á Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu og er hann einnig sagður hafa leyft honum að útvíkka starfsemi málaliðahópsins þar. Um fimm hundruð Wagner-liðar heyra undir Prígósjín í Mið-Afríkulýðveldinu.

Málaliðar Wagner eru meðal annars hluti af lögreglunni, hernum og taka þátt í starfsemi leyniþjónusta ríkisins. Prígósjín hefur einnig ráðið til sín talsverðan fjölda af uppreisnarmönnum sem Wagner hefur sigrað og eru þeir gjarnan kallaðir „svartir Rússar“ í Mið-Afríkulýðveldinu. Þessir menn eru sagðir styðja starfsemi Wagner og hafa verið sakaðir um ýmis ódæði, eins og málaliðar Wagner.

Pavel Prígósjín hefur verið beittur refsiaðgerðum af Evrópusambandinu.

Selur gull, vopn, fíkniefni og vodka

All Eyes on Wagner, sem eru samtök rannsóknarblaðamanna sem hafa kafað í saumana á starfsemi málaliðahópsins, sögðu frá því í fyrra að Wagner virkaði nánast eins og sníkjudýr á baki Mið-Afríkulýðveldisins. Hópurinn hefði umfangsmikil völd þar og hagnaðist gífurlega á auðlindum landsins.

Meðal annars rekur Wagner eina stærstu gullnámu landsins og yfirvöld þar hjálpa Prígósjín við að koma gullinu úr landi, með því að veita fölsk vottorð um að gullið sé ríkiseign. Gullið hefur meðal annars verið flutt til Belarús.

Wagner rekur útvarpsstöðvar í Mið-Afríkulýðveldinu þar sem reynt er að styrkja stöðu Touadéra og áróðri gegn Vesturlöndum dreift. Þáttastjórnendur stöðvanna ausa lofi yfir Rússland og þá má víða finna skilti og styttur sem hylla Rússland og Wagner-hópinn.

Hópurinn kemur einnig að fíkniefnasölu í Mið-Afríkulýðveldinu.

Í grein WSJ er sagt frá því að íbúar Bangui, höfuðborgar ríkisins, hafi deilt myndum og myndböndum af grímuklæddum Wagner-liðum í fylgd lögreglumanna, þar sem þeir hafi verið að handtaka meinta fíkniefnasala. Þeir munu hafa verið að selja fíkniefni án aðkomu Wagner.

Grímuklæddir Wagnerliðar í lögreglubúningum fóru í sumar inn í verslun manns sem hafði áður starfað með þeim í fíkniefnasölu en hafði hætt því. Hann reyndi að flýja en var gómaður, barinn og dreginn á brott. Maðurinn hefur ekki sést síðan.

Þar að auki er Prígósjín sagður selja vopn til annarra Afríkuríkja og brugga og selja vodka, svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að hann afli sér um fjögur hundruð milljónum dala á ári með þessari starfsemi.

#glaumgosinn #málaliðaveldi #sem #tók #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951463d/glaumgosinn-sem-tok-vid-malalidaveldi-fodur-sins

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 1
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 2
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 1
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 3
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 3
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 2
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 2
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 2
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 3
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á sta...
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland...
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Fastei...
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þ...
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
A court has stopped the eviction of a 70-year-old man with cancer in Guaza, in the south Tenerife municipality, a day before it was due to take place....
Slydda eða snjókoma norðvestan til
📅 22.10.2026 👁️ 4
Slydda eða snjókoma norðvestan til
Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þ...
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur ...
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir ...
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrir...
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköp...
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
📅 22.10.2026 👁️ 4
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
Health officials have confirmed three cases of viral meningitis linked to pupils at CEIP Tigaday in La Frontera, El Hierro. All of those affected are ...
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
📅 22.10.2026 👁️ 4
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
A man has been arrested and sent to prison pending proceedings over the sexual assault and murder of a woman in Tenerife nine years ago.The National P...
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Mærður höfundur hankaður á gervigreind Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu ve...
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að l...
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
Scotland editor James Cook visits Rosebank - the UK's largest known untapped oilfield - in the North Atlantic.
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
📅 22.10.2026 👁️ 3
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
The Canary Islands will see contrasting weather today, Thursday 22nd October, with improving conditions in the east and a greater chance of rain acros...
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
Mynd Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, M...
How Arab parties could hold critical balance of power in Israeli election
📅 22.10.2026 👁️ 2
How Arab parties could hold critical balance of power in Israeli election
Disaffection has often driven down turnout among Arab Israelis, but there is a strong push to get rid of the right-wing governing coalition.