Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni.
Málið varðaði upplýsingar sem var að finna á þremur hörðum diskum. Þessara upplýsinga var aflað í frægri húsleit á skrifstofum Samherja í mars 2012 vegna gruns um brot félagsins á gjaldeyrislögum. Þar var lagt hald á mikið magn gagna og afrit af þeim var geymt í þessum hörðu diskunum.
Þorsteinn Már vildi meina að í þessum gögnum hefði verið að finna persónulegar upplýsingar um hann og því taldi hann sig eiga rétt til miskabóta. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu árið 2021 að Seðlabankinn hefði ekki brotið persónuverndarlög með því að eyða ekki gögnunum eftir að rannsókn bankans á Þorsteini Má og Samherja lauk.
Máli Seðlabanka, Samherja og Þorsteins Más lauk þegar Hæstiréttur felldi úr gildi 15 milljóna króna sekt á hendur Samherja og Þorsteini fyrir meint brot á gjaldeyrislögum. Bankanum var í kjölfarið gert að greiða Þorsteini Má 2,5 milljónir króna í miskabætur.