Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá. Til stendur að nemendur í 10. bekk fái lokaeinkunnir í tölustöfum næsta vor.Borið hefur á gagnrýni vegna þessa sem snýr til dæmis að því að hinu nýja kerfi fylgi ekki nægilega skýrar leiðbeiningar. Þá er gagnrýnt að innleiðingartími fyrir kennara sé ekki nægur og breytingarnar séu ekki þess fallnar að stuðla að markmiðum um samræmi, aukið jafnræði milli nemenda og skýrleika einkunna.
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“