Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst með krabbamein. Hann þurfti að bíða í rúmt ár eftir skoðuninni sem leiddi til þess að meinið uppgötvaðist.Guðmundur Ingi sagði frá þessu undir dagskrárliðnum störf þingsins í tilefni af bleika deginum, sem er helgaður stuðningi við fólk sem glímir við krabbamein og aðstandendur þess.
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“