Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar suma fjölmiðla um að vilja stýra þróun samfélagsins fremur en að segja frá því sem gerist og segir frétt RÚV um málið hafa verið efni fyrir breska grínhópinn Monty Python.
Í færslu á Facebook heldur Sigmundur því fram að vandræði fjölmiðlanna felist í því að atburðirnir falli illa að þeim boðskap sem þeir hafi lengi haldið að almenningi.
„Vandamálin skapast þegar menn fara að líta á það sem hlutverk sitt að stýra þróuninni fremur en að segja frá henni og hafa vit fyrir fólki í stað þess að upplýsa það.“
Segir skýringar um námsgögn ekki duga
Sigmundur segir fjölmiðla lengi hafa lýst mótmælunum sem viðbrögðum framhaldsskólanema við skorti á námsgögnum og slæmum aðstæðum í skólum. Þeirri skýringu hafi áfram verið haldið á lofti eftir að íkveikjur og skemmdarverk hófust.
Að hans mati hefði óánægja franskra unglinga með fjárframlög ein og sér tæpast vakið mikla alþjóðlega athygli. Það hafi hins vegar breyst þegar kveikt var í húsum og bílum og verslanir lagðar í rúst.
Sakar fjölmiðla um að tortryggja umræðuna
Hann gagnrýnir sérstaklega umfjöllun um gervigreindarmyndir og myndir frá öðrum löndum sem hafi verið dreift í tengslum við atburðina í Frakklandi. Slík umfjöllun sé að hans mati notuð til að tortryggja umræðuna í heild.
„Gervitalið var auðvitað til þess ætlað að tortryggja alla umræðu um hvað væri raunverulega að gerast.“
Sigmundur segir fjölmiðla geta fylgst með óeirðunum í beinum útsendingum á netinu en sakar þá um að velja myndir sem sýni aðeins afmarkaðan hluta atburðanna.
„Í staðinn passa þeir sig mjög vel á vali fréttamynda. Leita að myndum af unglingum með pappaspjöld en sýna ekki stóru hópana og fánana sem þeir bera.“
Hæðist að umfjöllun RÚV um hitann
Sigmundur segir RÚV hafa vísað til hitabylgju í sumar og þess að nemendur hafi þurft að taka samræmd próf í miklum hita án loftkælingar. Hann hæðist að þeirri áherslu og segir frétt stöðvarinnar hafa verið „mjög gott efni fyrir Monty Python hópinn“.
Þá fjallar hann um viðbrögð Emmanuels Macron Frakklandsforseta. Að sögn Sigmundar hefur forsetinn kennt vinstri öfgamönnum um ástandið, sem Sigmundur telur að miklu leyti rétt.
Sjálfur lýsir hann því sem „hinu gamalkunna vanhelga bandalagi vinstri öfgamanna og íslamista“ og telur erfitt fyrir suma fjölmiðla að nefna þá skýringu.
„Þegar boðskapurinn hefur lengi krafist þess að litið sé fram hjá staðreyndum og þversögnum verður raunveruleikinn stöðugt meira vandamál.“