Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fóru á vettvang en bifreiðin var þá hvergi sjáanleg.Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir tímabilið frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Alls voru 60 mál skráð hjá lögreglu á tímabilinu og gista þrír fangageymslur lögreglu eftir nóttina.
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla