Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. Harka lögreglu í garð mótmælenda hafi hins vegar komið henni á óvart.
Hún segir fyrrverandi nemendur sína, sem tekið hafa þátt í mótælunum, vera í áfalli yfir framkomu lögreglu. Fyrirsjáanlegt hafi verið að það myndi sjóða upp úr í mótmælunum 17. október.
Verið að biðja um algjört lágmark
Jóhanna Thorarensen flutti til Frakklands 2008 og býr í Montpellier. Hún kennir í grunnskóla en kenndi áður í framhaldsskóla. Hún segir franska skólakerfið töluvert ólíkt því íslenska.
„Það er mikil pressa, mikil áhersla á einkunnir og bóknámsfög, sem margir myndu vilja breyta og ég er sammála því. Á heildina litið er ég ánægð að vera hluti af kerfinu og fá að vera með krökkunum.“
Framhaldsskólanemar efndu til mótmælanna vegna mikils niðurskurðar í menntakerfinu. Jóhanna segir ástandið ekki eins slæmt í skólum í Montpellier eins og annars staðar.
„Það sem hefur gerst er til dæmis að í vor voru hitabylgjur á sama tíma og nemendurnir áttu að sitja samræmt próf sem gilda síðan fyrir næsta skólastig. Það er ekki loftræsting, það er oft illa einangrað þannig að krakkarnir voru að sitja tvo til þrjá tíma í prófi í 35 stiga hita, sem er náttúrulega bara alls ekki gott.“
Viðhald og framkvæmdir við skóla hafi setið á hakanum sem hafi orðið til þess að nemendum líði illa í skólanum. Því hafi ekki komið á óvart þegar mótmælin hófust.
Jóhanna bendir á að framhaldsskólanemar hafi mótmælt kröftuglega í gegnum árin og áratugina og fengið í gegn í breytingar. Meðal krafna þeirra núna sé betra húsnæði, meira fjármagn í menntakerfið og meira gagnsæi í inntöku í háskóla. Hún segir þrautsegju nemenda hafa komið sér á óvart.
„Það eina sem kom skemmtilega á óvart er hvað þol krakkana í að standa á sínu og bakka ekki með sínar kröfur. Það er í raun verið að biðja um algjört lágmark.“
Jóhanna bendir á að framhaldsskólanemar hafi mótmælt kröftuglega í gegnum árin og áratugina og fengið í gegn í breytingar. Meðal krafna þeirra núna sé betra húsnæði, meira fjármagn í menntakerfið og gagnsærra inntökuferli í háskóla. Hún segir þrautsegju nemenda hafa komið sér á óvart.
„Það eina sem kom skemmtilega á óvart er hvað þol krakkana í að standa á sínu og bakka ekki með sínar kröfur. Það er í raun verið að biðja um algjört lágmark.“
Stjórnvöld hlusta ekki
Jóhanna kannast sjálf við margt af því sem nemendur eru ósáttir með.
„Þetta er eitthvað sem við á kennarastofunni tökum eftir og höfum sjálf sem kennarar verið að mótmæla en vonandi, þegar krakkarnir fara af stað, þá er hlustað.“
Atburðir síðustu daga og vikna séu afleiðing af ákvörðunum ríkisstjórnar Emmanuels Macrons Frakklandsforseta sem hefur verið við völd síðasta áratuginn.
„Það er verið að tala um hvað má betur fara og svo er eins og stjórnvöld hlusti ekki og komi til baka með lausnir sem eru annað hvort bara plástrar á skotsár eða þá að þau tali niður til fólks.“
„Það var ofsalega fyrirsjáanlegt að það myndi sjóða upp úr“
Jóhanna segist vera í góðu sambandi við fyrrverandi nemendur sem hafa verið að mótmæla. Það hafi komið krökkunum sem hún þekkir og kenndi í opna skjöldu hversu gróf viðbrögðin voru.
„Það er kannski það sem hefur haft áhrif á mig og marga í Frakklandi, hvernig lögreglan hefur brugðist við þessum mótmælum og margir krakkar eru í ákveðnu sjokki yfir því hvernig lögreglan hefur komið fram við þau.“
Grímuklædd lögregla hafi mætt nemendum með táragasi og kylfum.
„Það mæta þarna lögreglumenn og konur en það er engin leið að sjá framan í þau af því að þau eru með grímur og skildi og klædd bara eins og „Robocop“ og eru mjög fljót að grípa til táragass og eru með kylfur. Það eru myndskeið á samfélagsmiðlum af lögreglunni að lemja og að beita táragasi á 14-18 ára börn. Menntaskólanemar eru 14-18 ára í Frakklandi.“
Hún segir yfirleitt auðvelt að tala við unglinga á yfirvegaðan hátt en framkoma lögreglu geri það erfiðara.
„Auðvitað geta unglingar verið reiðir en þegar maður horfir í augun á þeim og talar við þá að þá er mjög sjaldan sem þeir missa sig í einhverju ofbeldi. En ef lögreglan mætir í svona bardagaham er mjög erfitt að byrja eitthvað samtal.“
„Reiðin er ennþá meiri“
Jóhanna segir að það hafi verið löngu vitað að mótmælin 17. október yrðu umfangsmikil og því miður séu alltaf einhverjir sem nýti sér það til skemmdarverka og þjófnaðar.
„Það var ofsalega fyrirsjáanlegt að það myndi sjóða upp úr. Vegna þess að það var vitað að þetta yrðu „massív“ mótmæli. Yfirvöld bjuggust við 100 þúsund manns en það voru 550 þúsund. Ég skil ekki alveg hvernig í ósköpunum þau gátu haldið að yrðu færri á mótmælum heldur en vanalega þegar reiðin er ennþá meiri og það er búið að vera að ráðast á börnin í samfélaginu.“