Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þó frekar úrkomulítið framan af degi.
Hálka eða hálkublettir eru víða þar sem Vegagerðin er búin að kanna aðstæður. Lögreglan á Akureyri hvetur fólk til að fara varlega.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðvestan 8-15 metrar á sekúndu norðvestantil með dálítilli slyddu eða snjókomu. Annars suðlæg eða breytileg átt 3-10 og skúrir eða slydduél, en úrkomuminna norðantil framan af degi.
Breytileg átt 3-8 á morgun og dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla norðanlands.
Hiti 1 til 7 stig að deginum, mildast á Austfjörðum og suðaustanlands.