Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minni styrk hafa valdið hallanum á hátíðinni í ár.
„Það væri okkur mikill akkur að geta haldið hátíðina án slíkra vandkvæða í febrúar næstkomandi,“ segir í umsókninni, sem Ingibjörg Gréta Gísladóttir framkvæmdastjóri undirritar.
Ógreiddur kostnaður hluti af fjárþörfinni
Samkvæmt fjárhagsáætluninni vantar tæplega sex milljónir króna til að ná endum saman á næsta ári. Þrjár milljónir í ógreiddan kostnað frá fyrri hátíð eru innifaldar í þeirri upphæð.
Þá er þegar reiknað með fjórum milljónum króna í mögulega styrki: 2,6 milljónum frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og 1,4 milljónum vegna kosningastjórnar. Fjárþörfin er því tæpar sex milljónir að þeim styrkjum fengnum.
Áætlaður kostnaður við sjálfa Edduhátíðina er 11,8 milljónir króna.
Sóttu einnig um sex milljónir í fyrra
Akademían óskaði einnig eftir sex milljóna króna styrk vegna Eddunnar 2026. Í þeirri umsókn, frá nóvember í fyrra, sagði að Kvikmyndamiðstöð gæti ekki styrkt hátíðina með sama hætti og áður vegna lægra framlags til kvikmyndastefnunnar og kvikmyndamenningar. Sama ástæða er tilgreind í nýju umsókninni.