Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur að geymslu brauðs.Í umfjöllun breska dagblaðsins The Guardian er rætt við þrjá bakara sem deila ráðum sínum um hvernig best sé að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst.Sophia Handschuh, annar stofnenda bakarísins Sourdough Sophia í Lundúnum, segir að sjálf geymi hún brauð við stofuhita í pappírspoka, gjarnan þeim sama og það kemur í úr bakaríinu.„Það er líklega besta leiðin. Ekkert plast,“ segir hún.
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um