Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barðist um í fjöruborðinu í firðinum. Hann er í eigu eldisfyrirtækisins Arctic fish.
Í gær átti að sækja hann og koma honum á öruggan stað. Það gekk ekki betur en svo að þegar búið var að draga hringinn á flot slitnaði hann frá og rak í burtu á nýjan leik. Myrkur var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað. Hringinn rak um einn til tvo kílómetra þar til hann strandaði aftur og situr nú fastur.
Þetta staðfesti Egill Ólafsson, þjónustustjóri Arctic Fish, í samtali við fréttastofu. Hann telur enga hættu hafa verið á ferðum. Þeir hafi getað fylgt hringnum þar til hann rak á land.
„Við erum bara að bíða eftir að veðrið lægi. Við förum um leið og það gengur niður af stað aftur. Við erum að vonast til að geta farið af stað um miðjan dag.“
Flothringurinn hefur verið strand í rúmar fimm vikur.
Lögregla, Landhelgisgæslan og björgunarsveitir ekki meðvitaðar
Einar segir myrkur hafa verið á svæðinu en að þeir hafi byrjað aðgerðirnar í björtu.
„Við fylgdum henni eftir, sáum hvar hún er og vitum hvar hún er og erum að fylgjast með henni. Leið og veðrið lægir förum við af stað aftur. Þetta eru ekki ideal aðstæður til að vera í en við erum að gera okkar besta.“
Fréttastofa setti sig í samband við lögregluna á Vestfjörðum sem hafði ekki heyrt af málinu. Sömu sögu er að segja af Landhelgisgæslunni og björgunarsveitinni á svæðinu. Enginn var kallaður til aðstoðar. Slíkur hringur vegur allt að 25 tonn og getur verið hættulegur smærri bátum.
Einar Helgason, formaður strandveiðifélagsins Króks á sunnanverðum Vestfjörðum, sagði í samtali við RÚV í síðustu að flothringir væru stór og þung fyrirbæri sem sæjust illa í sjó og væru sérstaklega hættuleg smábátum þegar þeir væru á reki. „Bátur getur hæglega, ef hann er á mikilli ferð, farið á hvolf við að sigla á svona hring,“ sagði Einar.