Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún gagnrýndi Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, vegna ummæla hans um múslima og innflytjendamál.Ummælin eru sum hver nokkuð óvægin. Meðal annars er lagt til að íslam verði bannað á Íslandi og að innflytjendur verði að vera kristinnar trúar. Aðrir gera lítið úr Jasminu, saka hana um að sækjast eftir athygli og beina að henni persónulegum athugasemdum.
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna