Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þeirra.
Witkoff hældi Pútín og sagði hann mannvin fyrir að frelsa bandarískan ríkisborgara, Stephen Hubbard, úr haldi. Hubbard er 74 ára enskukennari sem barðist með Úkraínuher og endaði sem stríðsfangi Rússa. Hann var dæmdur til 7 ára vistar í fangabúðum.
Aðstoðarmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, Yuri Ushakov, sagði við fréttamenn Rússa eftir fund þeirra að Rússar væru tilbúnir til að halda áfram með þríhliða viðræður milli Bandaríkjanna, Úkraínu og Rússlands. Það yrði þó ekki fyrr en eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember og þá vilji Rússar leggja áherslu á öryggismál að átökum loknum.
Ushakov sagði að Witkoff hefði kynnt nokkur ný atriði í nálgun Evrópuþjóða og Úkraínustjórnar eftir fundinn í Noregi en bætti svo við að þær hugmyndir væru ekki bitastæðar.
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segist styðja það að halda áfram þríhliða viðræðum.
Miklar árásir í nótt
Þrátt fyrir stíf fundarhöld og viðræður í Osló og Pétursborg undanfarna daga hefur ekki dregið úr árásum milli Úkraínu og Rússlands.
Að minnsta kosti 7 voru drepnir í árásum Rússa í nokkrum héruðum Úkraínu og 15 særðust í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greindi frá árásunum sem gerðar voru á fjölmarga staði í borginni, þar á meðal íbúðarhúsnæði og samgönguinnviði.
Þá særðust tveir í árásum Úkraínumanna í Moskvu-héraði. Borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobyanin, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að yfir 800 drónum hefði verið flogið að Moskvu-héraði. Flestir drónarnir voru eyðilagðir af loftvarnarkerfum.