Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervigreindar og aukinnar sjálfvirknivæðingar á rekstur borgarinnar, atvinnustig íbúa, tekjustofna borgarinnar og samfélagslegan jöfnuð til næstu tíu ára.
Gervigreindin komin til að vera
Í bókun borgarfulltrúa Samfylkingar segir að gervigreindin sé komin til að vera og geti orðið ein mesta framfarabylting okkar tíma. Hún geti aukið framleiðni, dregið úr skriffinnsku og gefið starfsfólki borgarinnar meiri tíma í að veita góða almannaþjónustu. Borgin eigi að vera í fremstu röð við að nýta tæknina til góðs á ábyrgan hátt. Í bókuninni er talað um að stærsti hluti tekna borgarinnar byggi á útsvari af launum íbúa en borgin fái hvorki hlut í tekjuskatti fyrirtækja né fjármagnstekjuskatti.
„ Ef framleiðni og hagnaður fyrirtækja aukast án þess að launin fylgi með gæti borgarsjóður farið á mis við ávinninginn meðan þörfin fyrir grunnþjónustu á borð við leikskóla, grunnskóla og velferðarþjónustu eykst,“ segir í bókuninni.
Flóknara að meta áhrif á vinnumarkaðinn
Meirihlutinn í borgarstjórn segir í sinni bókun sjálfsagt að meta áhrif gervigreindar með heildstæðum hætti. Hún sé þegar nýtt með ýmsum hætti og borgin meti ábata fjárfestinga í slíkum lausnum. „Flóknara er að meta áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn og tekjur borgarinnar af útsvari enda liggur ekki enn fyrir að fullu hvaða störf munu víkja og hvaða störf verða til með aukinni notkun gervigreindar.“
Í bókun borgarfulltrúa Vinstrisins segir að mikilvægt sé að hafa það að leiðarljósi að gervigreind, mállíkön og sjálfvirknivæðing komi ekki stað mannlegra samskipta.
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands segir í sinni bókun að verði innleiðing gervigreindar áfram „algjörlega á forsendum markaðarins án félagslegrar stýringar og eignarhalds er augljóst að útkoman verður síhröðuð tilfærsla auðs frá vinnandi fólki til fjármagnseigenda“.
Sjálfvirknivæðing eigi að leiða til styttri vinnutíma, betri þjónustu og minna vinnuálags. Ekki til skertra launa, hópuppsagna eða að mannleg samskipti við borgarbúa víki fyrir vélrænu viðmóti.