„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur aðstoðarmanni sínum og Maríu Rut Kristinsdóttir, varaformanni þingflokks Viðreisnar og maka Maríu Rutar, sem er í fríi sem maki aðstoðarmannsins.
Ytra hitti Þorgerður Katrín fyrir fulltrúa hinna EFTA ríkjanna en þar má finna aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Noregs, forseta Sviss, og forsætisráðherra Liechtenstein.
Ferðalagið var löngu skipulagt en ber upp á tíma þar sem kastljósið hefur beinst að Viðreisn eftir að Jón Gnarr, þingmaður flokksins, ákvað óvænt að yfirgefa þingflokkinn. Hann hefur með alls konar myndlíkingum lýst stöðu mála innan Viðreisnar og meðal annars líkt sambandi sínu við flokkinn sem sambandi við áfengissjúkling, sagt forystufólk í flokknum ekki þola hvert annað og lýst nei-inu í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem gríðarlegu áfalli.
Þorgerður Katrín stendur vaktina í utanríkismálum og sendi kveðju á Facebook á tíunda tímanum í morgun.
„Það var ánægjuleg stund að undirrita fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Víetnam í Hanoi fyrir hönd Íslands. Með samningnum opnum við nýjar dyr fyrir íslensk fyrirtæki inn á ört vaxandi markað með yfir 100 milljónir íbúa.
Viðskipti Íslands og Víetnam hafa þegar verið að aukast. Á síðasta ári jókst útflutningur okkar til Víetnam um 40% frá fyrra ári. Þar vega sjávarafurðir langþyngst, en tækifærin eru miklu fleiri. Íslensk fyrirtæki búa yfir dýrmætri þekkingu og hugviti, meðal annars á sviði jarðvarma og grænnar orku en talið er að jarðvarmi sé á 250-300 stöðum í Víetnam. Þar getum við komið sterk inn. Sömuleiðis er fjöldi tækifæra í tæknilausnum, sem mikil eftirspurn er eftir víða um heim,“ segir Þorgerður Katrín.
Með samningnum verði tollar á nær allan núverandi útflutning EFTA-ríkjanna til Víetnam felldir niður, ýmist strax við gildistöku eða í áföngum.
„Það þýðir betra samkeppnisumhverfi, greiðari aðgang að nýjum mörkuðum og aukin tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að vaxa og skapa verðmæti. Við Íslendingar erum lítil þjóð sem byggir stóran hluta velmegunar sinnar á viðskiptum við umheiminn. Þess vegna skiptir svo miklu máli að rækta viðskiptasambönd, ryðja hindrunum úr vegi og tryggja að íslenskt hugvit, vörur og þjónusta eigi greiða leið út í heim. Öflug utanríkisviðskipti skapa sömuleiðis störf, verðmæti og aukna hagsæld hér heima.“
Ferðalaginu í Asíu er ekki lokið.
„Næst er það svo Kína þar sem ég mun eiga tvíhliða fundi, meðal annars við utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra Kína. Á þessum tímum er mikilvægt sem aldrei fyrr að treysta aðgang að mörkuðum og byggja þannig undir atvinnulíf og samfélag. Tækifærin eru víða.“
Jakob Frímann nýkominn frá Kína
Þorgerður Katrín fylgir þar eftir heimsókn Jakobs Frímanns Magnússonar, fyrrverandi þingmanns Flokks fólksins, til Kína í síðustu viku að segja frá íslenskri menningu.
„Kynntist Kína upp á nýtt er ég fékk boð um að halda fyrirlestur um íslenska menningu á fjölþjóðlegri ráðstefnu í hinni fögru borg Tianjin, skammt frá Beijing í sl. viku. Hef ekki komið til Kína síðan haldið var í tónleikaför Stuðmanna 1986,“ sagði Jakob Frímann í færslu á Facebook á mánudag.
„Enga þjóð veit ég hafa tekið jafn stórt og metnaðarfullt stökk fram á við á jafn skömmum tíma og þessa þjóð - og það í harla víðum skilningi. Ræddi við CGTN ríkissjónvarpsstöðina, heimsótti fjölmarga staði og stofnanir og sat m.a. fundi í hinu risastóra þinghúsi, Höll fólksins. Með mér í för voru fulltrúar 52 þjóða, en þar bar af ástkær eiginkona mín, Birna Rún Gísladóttir, sem er einhver allra besti ferðafélagi sem hugsast getur. Hreifst hún mjög af landi og þjóð ekki síður en ég og sagði á öðrum degi þessarar átta daga heimsóknar; „Hingað skulum við koma sem fyrst aftur - og taka dætur okkar með!“ Það er tilhlökkunarefni að geta senn flogið beint til Kína með Air China og spái ég vaxandi áhuga Íslendinga á slíkum valkosti.“