Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringin var sögð vera að „framleiðslu mikilvægasta bragðefnisins hefði verið hætt og þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan og rannsóknir sælgætismeistara Nóa-Síríusar hefði ekki fundist hliðstætt efni hjá öðrum framleiðendum“.
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“