Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á staðinn til að setja upp lokanir, oft við erfiðar aðstæður í myrkri og mikilli umferð.
„Lokunin fer fram í nokkrum skrefum til að leiðbeina ökumönnum og beina umferð á öruggan hátt í rétta átt.
- Hraðinn lækkaður. Hraðaskilti, um 500 metrum frá lokunarstað, lækka leyfðan hámarkshraða úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Rauð blikkljós kvikna jafnframt beggja vegna vegarins.
- Vinstri akrein lokað. Akreinaskilti vísa allri umferð yfir á hægri akrein.
- Báðum akreinum lokað. Næsta skilti sýnir lokun á báðum akreinum til vesturs.
- Umferð beint frá brautinni. Síðasta skiltið vísar ökumönnum út af Reykjanesbraut og niður að hringtorginu við Rauðamel.
- Hjáleið um Reykjanesbraut til austurs. Frá hringtorginu er umferð beint aftur inn á Reykjanesbraut til austurs, í átt að Hafnarfirði og Reykjavík.
- Lokunarslár fara niður. Fyrst fer sláin við hringtorgið niður og um tíu sekúndum síðar tvær slár á Reykjanesbrautinni sjálfri. Áberandi ljós eru á slánum og rauð blikkljós gefa skýr merki um að lokað hafi verið fyrir umferð.
Ökumenn upplýstir áður en komið er að lokun
Við álverið í Straumsvík er upplýsingaskilti sem að jafnaði birtir veðurupplýsingar frá Strandarheiði. Þegar Reykjanesbraut er lokað getur Vaktstöð birt þar skilaboð á borð við „Vegur lokaður – snúið við á næstu gatnamótum“ eða „Vegur lokaður vegna umferðaróhapps“.
Þannig fá ökumenn upplýsingar um ástæðu lokunar áður en þeir koma að henni og geta brugðist við í tíma.
Öryggi í fyrirrúmi
Með búnaðinum þarf ekki lengur að senda fólk út á akbrautina til að stöðva umferð, sem er ein hættulegasta stund hvers útkalls. Lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir geta þannig einbeitt sér að vettvangi og þeim sem á aðstoð þurfa að halda, í stað þess að stýra umferð.
Helstu atriði:
- Staðsetning: Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót um 1 km frá álverinu í Straumsvík.
- Lokunarslár: Þrjár, tvær á Reykjanesbraut og ein við hringtorgið við Rauðamel.
- Hraðalækkun: Úr 90 km/klst. í 70 km/klst. með breytilegum hraðaskiltum um 500 m frá lokun.
- Hjáleið: Um afrein að hringtorgi við Rauðamel og aftur inn á Reykjanesbraut til austurs.
- Stýring: Vaktstöð Vegagerðarinnar, í sama SCADA-kerfi og fyrir jarðgöng,“ segir í tilkynningunni.