Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu ári sem var í maí. Í byrjun árs var verð á tunnu 60,7 dollarar.
Íranski byltingarvörðurinn hótaði í morgun að hefja aftur árásir á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum láti Bandaríkjaher ekki af því að fylgja skipum í gegnum Hormússund. „Þetta er alvarleg viðvörun,“ segir í yfirlýsingu.
Í byrjun þessa árs kostaði tunna af hráolíu 60,7 dollara. Hér er miðað við gögn frá Trading Economics.
Í lok febrúar réðust Bandaríkin og Ísrael á Íran og þá má sjá hvernig olíuverð tók að hækka. Það náði hápunkti 4. maí þegar það fór 114,44 dollara og tók smádýfu þegar örlaði á friðarvonum en hækkaði svo aftur. Þegar þetta er skrifað er það 112,55 dollarar á tunnu.
Stjórnvöld í Íran segja Hormússund lokað fyrir umferð og gera reglulega árásir á skip sem fara þar um. Bandaríkjaher hefur brugðist við með því að fylgja skipum í gegnum sundið. Hormússund liggur milli Írans og Ómans, er aðeins um 30 kílómetra breitt og á friðartímum fer um fimmtungur allrar olíu heims þar um.
New York Times greinir frá því, og hefur eftir heimildum innan bandaríska stjórnkerfisins, að Bandaríkin og Ísrael hafi unnið að áætlun um að ráðast á Íran að nýju eftir þingkosningar í Bandaríkjunum 3. nóvember.
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hitti Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í vikunni til þess að ræða árásirnar, samkvæmt heimildum NYT. Það fór lítið fyrir heimsókn Hegseths en hann hitti Netanjahú á mánudag í Ísrael.