Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavélaklefa og/eða einangrunarklefa í stað þess að vera úthlutað fangaklefa í fangelsinu.
Hún hafi leitað til Fangelsismálastofnunar vegna málsins og hafi erindum hennar ekki verið svarað. Þar með hafi hún ekki fengið formlega afstöðu stofnunarinnar og ekki getað nýtt sér kæruheimild til dómsmálaráðuneytisins.
Í svari umboðsmannsins sem hefur verið birt á síðu hans segir að ekki sé gert ráð fyrir því að umboðsmaður hafi afskipti af máli áður en æðra stjórnvald hefur lokið umfjöllun sinni um málið. Konunni er bent á að bera málið undir dómsmálaráðuneytið, sem fer með fangelsismálin, áður en send er kvörtun til umboðsmannsins.
„Með þessu hef ég þó enga afstöðu tekið til þess hver viðbrögð þess við erindinu ætti að vera. Fari [konan] þá leið og sé ósátt við viðbrögð ráðuneytisins, eða skort á þeim, getur hún leitað til mín á nýjan leik og verður þá tekin afstaða til þess hvort, og þá að hvaða marki, málið getur komið til athugunar af minni hálfu,“ segir í bréfi umboðsmannsins.
Einnig er tekið fram að umboðsmaðurinn fari í sérstakar eftirlitsheimsóknir í fangelsin og verði kvörtun konunnar höfð til hliðsjónar.
Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga. Alls eru átta deildir, þar á meðal sérstakar kvennadeildir. Í fangelsinu eru 52 afplánunarpláss og fjögur gæsluvarðhaldspláss fyrir einangrun.