Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu sinni 1,2 milljónir króna í miskabætur.
Maðurinn hefur áður verið sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Það gerðist 2020 og þá hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm. Fyrr á þessu ári var hann sakfelldur fyrir þrjú ofbeldisbrot í nánu sambandi gegn sömu konu og hann braut á í þessu síðasta máli.
Nafn mannsins kemur ekki fram í dóminum.
Þótti ekki sannað að hann ætlaði að drepa konuna
Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til manndráps og fyrir stórfelld brot í nánu sambandi, framin í júlí. Samkvæmt ákæru barði hann konuna ítrekað og þrengdi að öndunarvegi hennar þannig að hún hætti að geta andað.
Dómari taldi ekki sannað að maðurinn hefði ætlað að drepa konuna. Það var vegna þess að hann hefði sleppt takinu þegar konan var að fjara út og missa meðvitund. Sannað þótti að hann hefði brotið gróflega gegn konunni með ofbeldi sínu.
Barsmíðar og kyrkingartak
Konan hafði verið á ferðalagi þegar maðurinn réðst á hana. Hann kom til að hitta hana og ætlaði með hana heim. Þau urðu sammála um að hittast í strætóskýli nærri staðnum þar sem konan dvaldi.
Konan sagði að maðurinn hefði fyrst ráðist á sig í strætóskýlinu en þau sagt að allt væri í lagi þegar lögregla kom á staðinn. Þegar inn var komið þar sem hún gisti hefði maðurinn ráðist á hana í stofunni en hún náð að sparka honum af sér, hlaupið inn í herbergi og læst að sér. Hann hefði barið á hurðina og haft í hótunum áður en hann sparkaði henni upp.
Nágranni gerði lögreglu viðvart um að eitthvað væri á seyði. Lögregla kom á staðinn og handtók manninn.
Þegar lögregla skoðaði íbúðina virtist sem hurðin að svefnherbergi konunnar hefði verið spörkuð upp og blóðslettur voru á veggjum og í rúminu. Hárlokkur af konunni og eyrnalokkur hennar voru á gólfinu.
Maðurinn neitaði sök, sagði þau hafa rifist og að hún hefði ráðist á sig en hann ekki barið hana.
Sannað þótti með framburði konunnar, rannsóknum á áverkum hennar og vitnisburði nágranna að maðurinn hefði beitt hana því ofbeldi sem lýst var í ákærunni. Hann var því dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Frá henni dregst gæsluvarðhald frá því í júlí.