Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvörtunum yfir fréttum Vísis og Mbl um óléttan trans mann hafnað – Vísuðu til ákvæða í fjölmiðlalögum um efni sem er skaðlegt börnum | DV – Frjáls og óháður miðill sagði frá kvörtunum Drenglyndis sem vill passa upp á að börn séu ekki mötuð á ósannindum. En hvorki Fjölmiðlanefnd né Umboðsmaður Alþingis finnst ástæða til að vernda börn gagnvart upplýsingaóreiðu og ósannsögli.
,,Óléttur karlmaður“ er kraftaverk sem ætti að verðlauna
Rifjum upp fyrir hvað menn fá Nóbelsverðlaun. Hermigreindin segir svo: ,, Nóbelsverðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga eða samtaka sem hafa veitt framúrskarandi framlög til samfélagsins, hvort sem er í gegnum rannsóknir, listsköpun eða öðru. Litið er á þessi verðlaun sem æðstu viðurkenningu sem fólk getur fengið fyrir framlög til mannkynsins.
Verðlaunin voru sett á fót sem hinsta ósk hins sænska Alfred Nobels (1833-1896), sem fann upp dýnamítið. Hann var hneykslaður á því hvernig uppfinning hans var notuð til illra verka og vildi að verðlaunin færu til þeirra sem gerðu heiminn að betri stað til að lifa í.”
Þegar karlmaður verður óléttur þá hefur eitthvað framúrskarandi gerst í líffræðinni. Eitthvað svo sérstakt að það ber að verðlauna. Með Nóbelnum. Að karlmaður verði óléttur er framlag til mannkynsins sem aldrei hefur verið fundið upp áður.
Af þessu framúrskarandi afreki segir Mbl. og Vísir fréttir án þess að minnast orði á Nóbelsverðlaunin!
Hvernig gerist þetta?
Almúginn þarf skýringu á hvernig slíkt getur gerst. Hvernig frjóvgast fóstrið? Hvar og hvernig í líkama karlmannsins eru vistarverur fóstursins? Hvar myndast næring barnsins í líkama karlmannsins og síðast en ekki síst, hvernig fæðir karlmaður barn? Í gegnum hvaða op kemur barnið þegar það er fullvaxta.
Þessu er ósvarað.
Ef það er í alvöru karlmaður sem á að fara í gegnum þetta, þá eru tvö op, þvagrásin og endaþarmurinn.
Heilbrigðisstarfsfólk látið í ykkur heyra
Læknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður, sem styðja slík ósannindi, ættu að stíga fram á ritvöllinn og útskýra hvernig karlmaður getur verið ,,óléttur”, ,,gengið með barn” og ,,fætt barn.”
Allir þessir aðilar gætu fengið Nóbels verðlaunin, ásamt óléttum karlmanni, ef þeir sýna fram á hvernig karlmanni tekst að verða ,,óléttur” og koma barninu í heiminn. Yrði kraftaverk aldarinnar.
Höfundi rennur í grun að enginn stígi fram sem styður slík ósannindi sem haldið er m.a. að börnum í fjölmiðlum.
Rétt eins og Alfred Nobel sagði um dýnamítið, hvernig það var notað til illra verka má segja það sama um trans hugmyndafræðina sem notar líffræðina, líkamann Andlit National Geographic segir transið hafa eyðilagt líf sitt | Frettin.is og orðið kona, allt notað til illra verka. Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn | Frettin.is
Trans hugmyndafræðin
Svona ósannindi, Þvílík andskotans þvæla- karlmaður getur ekki gengið með barn – formannslif.blog.is að karlmaður sé óléttur, er hluti af ósannindum í trans hugmyndafræðinni. Þeir sem trúa þeirri hugmyndafræði og jafnvel lifa eftir henni vilja að aðrir trúi því sem þeir sjálfir trúa. En okkur ber ekki að gera það frekar en að kalla fólki nöfnum sem trans hugmyndafræðin hefur fundið upp. Ekki frekar en almúganum ber að trúa því sem sértrúarsöfnuðir hafa fram að færa.
Almenningur vill ekki láta ljúga að sér. Það veit hvert mannsbarn, KARLMAÐUR GETUR EKKI VERIÐ ÓLÉTTUR! Einfalt.
Lifi kona eftir transhugmyndafræðinni og segist karlmaður, verður HÚN ófrísk af því hún er KONA. Þar liggur galdurinn og engin Nóbelsverðlaun í boði.
Vilt þú lesandi góður að fjölmiðlar beri slíka þvælu á borð fyrir börn þín og barnabörn, að karlmaður sé ,,óléttur”?
Helga Dögg Sverrisdóttir