Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Alríkissaksóknari segir manninn hafa aflað upplýsinga um framleiðslu brynvarinna ökutækja, skotfæra og sprengiefna, auk starfsfólks og hernaðarmannvirkja.
Þýsk lögregla handtók í dag úkraínskan mann sem er grunaður um að hafa njósnað fyrir rússneska leyniþjónustu og einkum aflað „upplýsinga sem skipta máli fyrir hernað“, að sögn alríkissaksóknara.
Maðurinn, sem aðeins er nafngreindur að hluta sem Vadym Y., er sagður hafa safnað „upplýsingum um framleiðslu brynvarinna ökutækja, skotfæra og sprengiefna, auk upplýsinga um starfsfólk og hernaðarmannvirki á stöðum sem ætlað er að tryggja austurvæng Atlantshafsbandalagsins“, að sögn saksóknara.
Alríkislögreglan handtók hann í Oder-Spree-héraði í Brandenburg, austur af Berlín, á grundvelli upplýsinga frá þýsku innanlandsleyniþjónustunni BfV, að sögn saksóknara.
„Í síðasta lagi frá júlí 2025 var Vadym Y. í sambandi við rússneska leyniþjónustu í gegnum millilið,“ sögðu saksóknarar í yfirlýsingu.
„Í ljósi stríðsins milli Rússlands og Úkraínu aflaði hann í Þýskalandi upplýsinga sem skipta máli fyrir hernað, fyrir þessa leyniþjónustu.“
Saksóknarar sögðu hann hafa safnað upplýsingum sem voru aðgengilegar almenningi en einnig „beint …