Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina beggja vegna Atlantshafsins.
Stærstur hluti þessara afurða fer á markaði í ríkjum Evrópusambandsins. SFS (Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi) telja að verðmæti ferskra sjávarafurða sem þangað fara, hafi verið um 95 milljarðar króna á síðasta ári.
En það eru blikur á lofti fyrir þau fyrirtæki sem flytja ferskan fisk til Evrópu, eftir að víðtæk reglugerð Evrópusambandsins um umbúðir (Packaging and Packing Waste Regulation, PPWR) gekk í gildi í haust, og hefur það að markmiði að draga úr umbúðamagni og auka endurnýtingu þeirra.
Í þessari reglugerð er meðal annars að finna ákvæði um að eftir rúm þrjú ár, í byrjun árs 2030, skuli minnst 40 prósent af umbúðum fyrir fisk vera endurnýttar (notaðar aftur) og áratug síðar, árið 2040, á þetta hlutfall að vera komið í 70 prósent.
Engin leið að hafa uppá kössunum
Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS, segir að samtökin geri engar athugasemdir við þau markmið um endurvinnslu sem fram koma í þessari reglugerð - það sé hins vegar annað mál með kröfur um endurnotkun.
„Fyrirtæki innan SFS eru að senda ferskan fisk í þessum kössum til kaupenda og þaðan fara þeir út um alla Evrópu, þannig að það er engin leið fyrir útflutningsfyrirtæki hér á landi að hafa uppá kössunum, flytja þá til baka, þrífa þá og endurnýta, fyrir utan að svona umstang væri ekki umhverfisvænt, sérstaklega þegar við erum svo langt frá markaðsvæðum okkar í Evrópu,“ segir Hildur.
Hún bendir á að svona kassar séu endurunnir og efnið nýtt í öðrum tilgangi; meðal annars sem einangrun. „Það er erfitt, eða nánast ómögulegt að þrífa þessa kassa þannig að í endurnýtingu standist þeir strangar hreinlætiskröfur. Matvælaöryggi skiptir auðvitað höfuðmáli, og ekki síður að gæði og ferskleiki fisksins haldist á þeirri löngu leið sem er á markaði í Evrópu.“ segir Hildur.
Óskað eftir skýringum og mögulegum undanþágum í Brussel
Íslensk stjórnvöld og sendiráðið í Brussel hafa verið í samskiptum við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og lýst yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þessar kröfur gætu haft á íslenskan sjávarútveg; þau hafa einnig óskað eftir skýringum á því hvort tekið hafi verið tillit til matvælaöryggis þegar reglurnar voru mótaðar og hvort mögulegt sé að frauðplastumbúðir fyrir ferskar sjávarafurðir verði undanskildar kröfum um endurnýtingu.
Fulltrúar SFS hafa einnig átt fundi með fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB og lagt áherslu á matvælaöryggi og langar flutningsleiðir. Hildur segir að röksemdir þeirra hafi mætt skilningi. „Þetta mál hefur núna verið sent til EFSA (Matvælastofnunar Evrópusambandsins) og það má búast við greiningu frá þeim í lok næsta árs. Þangað til erum við í óvissu með framhaldið,“ segir Hildur.
Reglugerðin er ekki síður áhyggjuefni fyrir norska fiskútflytjendur sem flytja ferskan fisk, aðallega með flutningabifreiðum inn á markaði á meginlandinu.
Innleiðing í íslensk lög aukaatriði fyrir útflytjendur
Reglugerðin um umbúðir er merkt sem EES-tæk, sem þýðir að talið er að Noregur, Ísland og Lichtenstein eigi að taka hana upp og innleiða heima fyrir. Reglugerðin er nú í skoðun hjá EES-ríkjunum, og mjög líklegt þykir að hún verði á endanum tekin upp og innleidd í íslenskt lagaumhverfi. „Það skiptir hins vegar engu máli fyrir útflytjendur innan okkar raða,“ segir Hildur, „því það er búið að innleiða þetta í Evrópu, þangað sem ferski fiskurinn er sendur.“
Frauðplast ekki til framtíðar
Fólk sem fréttastofa hefur rætt við og þekkir til í þessari grein, segir að stöðugt sé unnið að því að finna aðrar lausnir sem gætu komið í stað frauðplastkassana; allir séu meðvitaðir um að þessar umbúðir séu ekki umhverfisvænar og ekki lausn til framtíðar.
Hingað til hefur hins vegar ekki tekist að þróa umbúðir sem hafa sömu eiginleika; eru léttar og eins einangrandi og frauðplastið.
Nýir kassar gætu verið lausnin
Lausnin gæti hins vegar verið í sjónmáli, því norska fyrirtækið CircMar er nú langt komið með að þróa sambærilega kassa úr endurunnu hráefni sem standast kröfur Evrópusambandsins um endurnýtingu.
„Í þessum kössum verða skynjarar sem fylgjast meðal annars með ferðalaginu, hitastigi í þeim og hnjaski sem kassarnir gætu orðið fyrir á leiðinni á markaðinn,“ segir Espen Ramsbacher stofnandi CirMar í samtali við fréttastofu.
„Þeim verður svo safnað saman aftur, þrifnir og sendir til fyrirtækjanna sem nota þá, og við gerum ráð fyrir að það verði hægt að endurnota þessa kassa í meira en eitt hundrað ferðir áður en líftími þeirra rennur út,“ segir Ramsbacher, og bætir því við að prófanir með viðskiptavinum hefjist næsta sumar. „Við ætlum að einbeita okkur fyrst að norskum viðskiptavinum, en horfum líka til Íslands í framhaldinu.“