Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun. Þar kemur meðal annars fram að þótt ríkisstofnunum hafi fækkað séu stofnanir sem telji tuttugu stöðugildi eða færri ríflega fjórðungur allra stofnana. Ríkisendurskoðun hvetji stjórnvöld til að kanna með hvaða hætti hægt sé að efla umræddar stofnanir og yfirstíga það óhagræði sem kunni að felast í smæð þeirra.
Í hraðaútttekt Ríkisendurskoðunar er sérstaklega vikið að vinnu við sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst en 1. október 2025 tilkynnti Háskólinn á Akureyri að háskólaráð skólans hefði ákveðið að hætta sameiningarviðræðum. Rifjar Ríkisendurskoðun upp að helstu ástæður sem gefnar voru upp hafi verið ólík rekstrarform skólanna og óvissuatriði í tengslum við stofnun rannsóknarsjóðs með sölu eigna og framlagi úr ríkissjóði.
„Það vekur athygli Ríkisendurskoðunar að svo virðist sem háskólaráðið hafi einhliða slitið framangreindum viðræðum, án samráðs við ráðuneytið. Embættið telur framangreind rök fyrir viðræðuslitum auk þess ekki haldbær. Ólíkt rekstrarform þessara aðila er að mati embættisins ekki fyrirstaða fyrir áframhaldandi sameiningaviðræðum. Þá vekur athygli að ráðuneytið hafi ekki verið haft með í ráðum þegar ákvörðun háskólaráðs lá fyrir. Forystuhlutverk ráðuneyta í sameiningarmálum stofnana þeirra er ótvírætt og því ekki í höndum undirstofnana að taka ákvarðanir um hvort haldið sé áfram í sameiningarferli. Skýrt er kveðið á um yfirstjórnunarhlutverk ráðherra skv. lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008.“
Skýrslurnar þrjár má nálgast hér.