Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis.
Einhver truflun hefur þó orðið á þjónustu þegar vefir hafa verið teknir niður í öryggisskyni.
Gallinn hefur valdið uppnámi um heim allan. Talið er að hann hafi áhrif á um 70% af alnetinu. Netfyrirtækið Cloudflare, sem sinnir um það bil fimmtungi allrar vefumferðar, hefur orðið vart við milljónir tilrauna tölvuþrjóta til að notfæra sér gallann.
Anton segir gríðarstóran árásarflöt hafa orðið til vegna hans.
„Þetta er mjög alvarlegt þegar svona stór hluti netsins er að nota forritunarmálið og þessa tækni einhvers staðar undirliggjandi í sínum kerfum,“ segir hann.
Upplýsingum lekið áður en lagfæringin var tilbúin
Glufan í forritunarmálinu hefur verið til lengi og í hefðbundnu ferli hefðu eigendur tækninnar uppgötvað hana og útbúið lausn fyrir hana.
„Þarna uppgötvast þetta, þessu er lekið og plásturinn ekki tilbúinn fyrr en sólarhring síðar,“ segir Anton.
Hann segist hafa dálitlar áhyggjur af því að einhverjir viti ekki að þeir séu með tæknina virka og hafi því ekki brugðist við gallanum.
„Það er þá kannski allra að ganga úr skugga um það hvort þeir séu með tæknina og séu búnir að koma í veg fyrir þetta.“