Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupplýsingar um hann væru í vörslu Seðlabankans í átta ár. Ekki verður heldur séð að starfsmenn bankans hafi brotið af sér með því að hafa gögnin í sinni vörslu og afhenda þau embætti héraðssaksóknara.
Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í miskabótamáli sem Þorsteinn Már höfðaði gegn Seðlabankanum. Hann var ósáttur við að bankinn hefði haft í sinni vörslu og áframsent til héraðssaksóknara persónuleg gögn og upplýsingar.
Gögn úr húsleit 2012
Upplýsingarnar voru hluti af gagnasafni sem Seðlabankinn aflaði sér í húsleit hjá Samherja 2012 vegna gruns um að fyrirtækið hefði brotið gjaldeyrislög. Hæstiréttur felldi síðar úr gildi sekt sem bankinn lagði á fyrirtækið.
Þorsteinn Már krafðist bóta vegna þess að Seðlabankinn hafði afrit af vegabréfi hans, ferðaáætlanir, upplýsingar um fjármál stefnanda persónulega og margar fleiri upplýsingar sem vörðuðu persónuleg og viðkvæm málefni hans.
Dómarinn sagði að ekki væri aðeins hægt að horfa til eðlis þeirra gagna sem væru undir í málinu. Hann sagði að einnig yrði að líta til þess að þau væru aðeins lítill hluti af öllum þeim gögnum sem var aflað við húsleitina. Auk þess hefðu þessar persónulegu upplýsingar aldrei verið sundurgreindar eða aðskildar frá öðrum gögnum.
Gögnin geymd í læstri hvelfingu
Dómari vísaði einnig til vitnisburðar starfsmanns Seðlabankans sem sagði að enginn starfsmaður hefði farið yfir öll gögnin heldur hefði einungis verið leitað í gagnasafninu með lykilorðum. Það var gert í tölvu sem var ekki nettengd. Gögnin voru vistuð á þremur hörðum diskum sem voru geymdir í læstri hvelfingu Seðlabankans sem fáir starfsmenn höfðu aðgang að.
Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, minntist þess ekki fyrir dómi að það hefði nokkru sinni komið til tals að persónuleg gögn eða upplýsingar væru í skjalasafninu.
Dró úr úrskurði Persónuverndar
Persónuvernd taldi að Seðlabankinn hefði ekki mátt geyma gögnin eftir að gjaldeyrismáli hans gegn Samherja lauk. Héraðsdómur Reykjavíkur segir þó að þar sem ekki hafi verið rætt í áliti Persónuverndar að persónulegu upplýsingarnar væru hluti af stærra safni þá drægi það úr niðurstöðu stofnunarinnar um að varsla upplýsinganna hefði ekki samræmst lögum.
Eitt af því sem var deilt um var hversu lengi Seðlabankinn hafði gögnin í sinni vörslu. Dómari sagði að þó svo gjaldeyrismálinu lyki með dómi Hæstaréttar 2018 hefði enn verið heimild fyrir Seðlabankann til að hafa gagnasafnið lengur og að lokum afhenda það héraðssaksóknara 2020. Héraðssaksóknari hefur rannsakað meint brot í starfsemi Samherja í Namibíu.
Í dóminum segir að bæði hafi Seðlabankinn ekki haft heimild frá þjóðskjalaverði til að grisja skjalasafnið á sínum tíma og eins hafi Þorsteinn Már ekki farið þess á leit að persónulegar upplýsingar yrðu fjarlægðar fyrr en eftir að héraðssaksóknari fékk gögnin.