Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum sem lagðar voru fram um fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni stofnana ríkisins. Á sama tíma hefur þó starfsmönnum ríkisins fjölgað um 23% frá því árið 2020.
Þrjár skýrslur Ríkisendurskoðunar voru kynntar fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun. Í skýrslunum kemur fram að það hafi verið yfirlýst stefna stjórnvalda undanfarinn einn og hálfan áratug að fækka stofnunum. Árangurinn hafi hins vegar ekki verið sá sem lagt var upp með og niðurstöðum starfshópa ekki fylgt eftir.
Í þeim er farið yfir stofnanir innan ráðuneyta Stjórnarráðs Íslands, hvernig fjöldi þeirra hefur þróast og hvernig stjórnvöld brugðust við tillögum Ríkisendurskoðunar um fækkun þeirra. Þá var einnig skoðað hversu vel var staðið að þeim breytingum sem gerðar voru innan ráðuneytanna.
Stöðugildum fjölgar þrátt fyrir færri stofnanir
Skýrslur Ríkisendurskoðunar sneru mun fremur að fjölda stofnanna fremur en fjölda starfsfólks en skoðað er hvernig fjöldi starfsfólks hefur þróast. Starfsfólki fjölgaði þó um 23 prósent og stöðugildum um 15 prósent. Þrjú ráðuneyti skera sig úr – heilbrigðis-, dómsmála- og menntamálaráðuneyti.
Mest hefur aukning orðið innan heilbrigðisráðuneytisins þar sem starfsmenn fara frá tæpum 11 þúsund yfir í 13.700 frá 2020 til 2025. Langflest starfsfólk heyrir undir heilbrigðisráðuneytið. Næst mest fjölgaði starfsmönnum hjá dómsmálaráðuneytinu eða um 700 frá 2020 til 2025.
Taka ber tölum um menntamála- og dómsmálaráðuneytisins með nokkrum fyrirvara. Fyrrnefnda ráðuneytið gekk í gegnum mikla uppstokkun árið 2021 með skiptingu í barna- og menntamálaráðuneyti annars vegar og háskóla- og nýsköpunarráðuneyti hins vegar. Þá kann uppstokkun á verkefnum og skipan stofnana að hafa áhrif á tölur dómsmálaráðuneytisins.
Umtalsverð fjölgun starfsmanna umfram stöðugildi kann að skýrast að hluta af styttingu vinnuvikunnar.
Fyllilega brugðist við tveimur af fjórum tillögum
Alls var fjórum úrbótatillögum beint til allra ráðuneyta Stjórnarráðs Íslands að undanskildu utanríkisráðuneytinu varðandi fjölda stofnana.
- Til fjármála- og efnahagsráðuneytis og forsætisráðuneytis var bent á að mikilvægt væri að stjórnvöld tækju afstöðu til framkominna tillagna.
- Að fækka þurfi undirstofnunum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
- Að Stjórnarráð Íslands athugi möguleika á aukinni samvinnu.
- Fjármála- og efnahagsráðuneyti var svo falið að tryggja gott eftirlit þegar undirstofnanir og viðföng eru fleiri.
Við árslok 2020 var fjöldi stofnana ráðuneyta Stjórnarráðs Íslands 155. Rúmur helmingur þeirra (51,2%) hafði 50 starfsmenn eða færri. Við árslok 2025 var enn um helmingur ríkisstofnana (49,5%) í þeim stærðarflokki.
Stofnunum fækkað um 18,7%
Í eftirfylgniskýrslu um stærð og fjölda stofnana innan ráðuneyta telur Ríkisendurskoðun að stjórnvöld hafi vissulega markvisst skoðað fækkun og sameiningu stofnana en stofnunum hefur fækkað úr 155 í árslok 2020 í 143 í árslok 2025 og stefnt er að 126 stofnunum við árslok 2026. Þannig hefur stofnunum fækkað um 18,7%, eða tæpan fimmtung, frá árinu 2020.
Þá er að talið að stjórnvöld hafi brugðist við óeðlilega miklum fjölda stofnana sem heyrðu undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og þeim hafi verið fækkað með tilfærslum til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Stofnunum menntamálaráðuneytis skipt upp
53 stofnanir eða 34% allra ríkisstofnanna heyrðu undir mennta- og menningarmálaráðuneytið árið 2021. Ríkisendurskoðun taldi þennan fjölda óhagkvæman í rekstri af Ríkisendurskoðun.
Við þessu var brugðist meðal annars árið 2022 þegar þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti var lagt niður og færðust stjórnmálaefni til þriggja ráðuneyta. Frá því 2025 hafa stofnanir þess verið á forræði tveggja ráðuneyta: mennta- og barnamálaráðuneytis með 30 og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytis með 24.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið tekur þó undir þau sjónarmið Ríkisendurskoðunar að áfram sé full ástæða til að leita frekari leiða til hagræðinga.
Enn hægt að bæta samstarf og eftirlit
Varðandi þær tillögur sem komið var til móts við að hluta var annars vegar talið að skoða þyrfti frekari samvinnu stofnana þegar ekki voru forsendur fyrir sameiningu og hinsvegar eftirlit ráðuneyta með stofnunum en Ríkisendurskoðun taldi slíkt eftirlit erfitt ef stofnanir eru of margar.
Varðandi fyrri tillöguna telur Ríkisendurskoðun að enn séu tækifæri til að efla vinnu í átt að samvinnu þeirra stofnana sem ekki var unnt að sameina.
Varðandi þá seinni er talið að ráðuneyti geti enn gert betur þegar kemur að skilvirku eftirliti með stofnunum og fjárlagaviðföngum þeirra. Í framhaldi af því hefur Ríkisendurskoðun ákveðið að gera stjórnsýsluúttekt þar sem skoða á eftirlitsskyldu tiltekinna ráðherra.
Hætt við vegna andstöðu
Fallið hefur verið frá nokkrum fyrirhuguðum sameiningum sem Ríkisendurskoðun rekur til andstöðu starfsfólks og stjórnenda viðkomandi stofnana. Úttekt Ríkisendurskoðunar tiltekur sérstaklega sameiningar skóla. Þetta voru sameining MS og Kvennaskólans, MA og VMA á Akureyri og sameining háskólanna á Akureyri og Bifröst. Ríkisendurskoðun minnir á ábyrgð ráðuneyta áður en sameiningar eru kynntar. Þau þurfi að undirbúa sameiningu, skapa sátt við forstöðumenn og miðla upplýsingum.
Breytingarnar vel framkvæmdar
Í þriðju skýrslunni er fjallað um eftirfylgni við stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar frá 2023 þar sem gerðar voru athugasemdir við þær breytingar sem gerðar voru á ráðuneytum eftir ríkisstjórnarmyndun 2021. Þær breytingar tóku gildi 2022.
Lesendur kannast eflaust við tíðar nafnabreytingar á ráðuneytum bæði þegar síðasta ríkisstjórn tók við og svo þegar núverandi ríkisstjórn tók við 2024. Breytingar á nöfnum ráðuneyta fela iðulega í sér miklar breytingar á því hvaða verkefni heyra undir tiltekin ráðuneyti og hvaða stofnanir og skoðaði þessi skýrsla Ríkisendurskoðunar hversu vel þær breytingar gengu.
Ríkisendurskoðun taldi í skýrslunni 2023 að undirbúningur breytinganna hefði verið of knappur og að ráðuneyti hefðu haft of lítinn fyrirvara. Þá hefði verkstjórn verið óskýr og flutningur starfsfólks reynst flókinn.
Í skýrslunni sem birt var í dag kemur hins vegar fram að stjórnvöld eru talin hafa brugðist við öllum tillögum Ríkisendurskoðunar. Þremur tillögum var beint til forsætisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Talið er að miðlæg verkstjórn og undirbúningur breytinga hafi verið bætt, stoðeiningar stjórnarráðsins styrktar og ber þar sérstaklega að nefna Fjársýslu ríkisins og Umbru og að lokum var talin betri yfirsýn yfir fjárhag og verkefni.