Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir

Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir

Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ - Vísir

Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi með þeim myndböndum af Caerphilly-kastala í Suður-Wales og tveimur risavöxnum gervidrekum. Gunnar hefur aldrei búið í hverfinu og innihaldið algjörlega óviðkomandi hverfinu.

Íbúarnir ráku svo eflaust upp stór augu í morgun þegar Gunnar birti í hópnum afmæliskveðju til sonar síns, Ásgríms Gunnarssonar, í tilefni af 34 ára afmæli hans. Blaðamaður heyrði hljóðið í Gunnari, sem var á akstursferðalagi um Bretlandseyjar, til að forvitnast um þessar óvenjulegu færslur.

„Jesús kristur, ég sá þetta í morgun,“ sagði Gunnar og hló tryllingslega þegar blaðamaður bar færslurnar í íbúagrúppunni undir höfund.

Er þetta ný leið til að ná til lesenda eða miðaldra klúður?

„Þetta er Mark Zuckerberg að kenna. Ég bað ekki um að þetta færi þarna inn. Ég er búinn að setja inn nokkur myndbönd frá Wales svo sá ég í morgun að þau höfðu ekki bara farið inn í íbúagrúppu Grafarholts heldur líka Prjónara í Seláshverfi og grúppur sem ég er ekki einu sinni meðlimur í,“ segir Gunnar.

„Ég skil þetta ekki en þetta er örugglega miðaldraklúður ef ég þekki sjálfan mig rétt.“

Þrjár færslnanna.

„Þetta er ógeðslega vandræðalegt“

Gunnar birti allar þrjár færslurnar á vegg sínum en dreifði þeim um leið víðar. Þannig rötuðu myndböndin til íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals og inn í grúppurnar Auglýsingatafla Bolungarvíkur og nágrennis, Íslendingar í Odense og Viðburðir í Þingeyjarsveit og nágrenni.

Þetta var sem sagt ekki með ráðum gert?

„Þetta er djúphugsuð markaðsherferð fyrir næstu bók,“ sagði Gunnar þá glettinn og bætti við hlæjandi: „Ég gekk í allar grúppur landsins og sendi svo á þær allar.“

Það er skemmtilegt að sjá svona persónulega afmæliskveðju á svona opinberri íbúagrúppu.

„Kom afmæliskveðjan þar líka?“ sagði Gunnar undrandi. 

Myndin sem fylgdi kveðjunni af hjónunum Gunna og Björk, syni þeirra Ásgrími og eiginkonu hans Sabrinu.

„Ég var búinn að sjá að myndböndin höfðu dottið þarna inn en ekki afmæliskveðjan. Ég sendi hana reyndar og keyrði bara af stað. Hvernig stendur á þessu? Kenndu mér þetta. Af hverju er þetta?“

„Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur enda aldrei búið á þessum svæðum. Djöfull er þetta fyndið,“ bætir hann við.

Kannski er Zuckerberg svona mikill aðdáandi?

„Hann vill hafa þetta sem víðast, hann er svo ánægður með þessa nýju bók.“

Þetta er helvíti skemmtilegt.

„Þetta er alls ekki helvíti skemmtilegt, þetta er ógeðslega vandræðalegt,“ segir Gunnar.

Breyti öllu að fara á staðinn

Blaðamanni lék forvitni á að vita hvers vegna Gunnar væri einn á ferðalagi um Wales. Ástæðan fyrir því er að hann vinnur nú að þríleiknum Sturlu, furðusagnabókaflokki sem gerist í fantasíuheimi framtíðarinnar og fjallar um tvíburana Regínu og Litlavin.

„Ég ákvað að leggja þetta á mig því ég er að skrifa bókaflokk sem gerist í Wales,“ segir Gunnar um ferðalagið og bætir við að hann sé þegar búinn að ferðast um Normandí, Færeyjar og England.

„En ég átti Wales svolítið eftir fyrir þriðju bókina í bókaflokknum. Fyrsta bókin, Sturla - Tvíburaveiðar, kemur út núna fyrir jól og önnur bókin er langt komin, ekki nema hálft ár eftir af vinnu fyrir hana,“ segir hann.

„Það breytir svo rosalega miklu að fara á staðinn, heyra einhverjar þjóðsögur og fróðleik um landið. Svo er ég með fulla ferðatösku af bókum um Wales,“ segir Gunnar sem er nýkominn frá þorpinu Hay-on-Wye sem er bókabær landsins og „bókahöfuðborg heimsins“ eins og Gunnar orðar það.

„Þetta er þorp, bara hundrað hús og 25 bókabúðir, samt hefur þeim fækkað mikið,“ segir hann.

Erfitt fyrir tvíbura að vera einn á flakki

Gunnar segir ferðalagið hafa verið gríðarlega hjálplegt fyrir skrifin. Wales sé ríkt af náttúrufegurð og sagan drjúpi af hverju strái. Staðurinn sé svo einstakur að hann velti fyrir sér hvers vegna Íslendingar hafi ekki farið þangað í meira mæli.

„Þetta er alveg einstakt, þvílík náttúrufegurð. Það sama gerðist þegar ég fór til Normandí, sagan lifnar við, bæði mannkynssagan og sagan mín,“ segir hann.

Gunnar er þó einn á ferð sem hann segir heldur krefjandi.

„Þetta er ógeðslega erfitt fyrir tvíbura, ég var rosaglaður þegar þú hringdir í mig,“ segir hann.

Eftir að hafa heimsótt Wales er Gunnar núna kominn til Bretlands sem hann segir að blikni algjörlega í samanburði við nágrannalandið. 

„Þetta er eins og ævintýraland, hvergi eru jafnmargir kastalar á ferkílómetra og endalausar sögur af drekum. Af hverju ætli það séu drekar í öllum ævintýrum, Harry Potter, Hringadróttinssögu og Krúnuleikunum? Þetta er allt komið frá þjóðsögum í Wales,“ segir Gunnar.

Gandálfur og Fróði úr Hringadróttinssögu.

„Tolkien nýtti sér það mikið, öll þessi skrítnu álfanöfn eru úr velsku. Hann var ekki bara aðdáandi Íslands og Íslendingasagna heldur líka velskra þjóðsagna. Ég er að feta í fótspor Tolkiens,“ segir hann.

Gunnar lýsir þríleiknum sínum sem furðusögu sem gerist í framtíðinni en byggir lauslega á sögulegum atburðum.

„Í framtíðinni er Reykjavík horfin, sokkin í haf og Selfoss orðin höfuðborg landsins. Færeyjar eru versti staður á jörðinni og svo gerist það auðvitað í bókinni að önnur söguhetjan endar þar,“ segir hann.

Kápa fyrstu bókarinnar í þríleiknum.

Gunnar hefur birt þessi tvö fyrrnefndu myndbönd frá Wales til að leyfa fylgjendum sínum og vinum að fylgjast með ferðalaginu. 

„Ási bróðir sagði að ég ætti að gera það,“ segir Gunnar og vísar þar til tvíburabróður síns, Ásmundar Helgasonar útgefanda.

Þannig þetta klúður er honum að kenna?

„Þetta er örugglega honum að kenna,“ segir Gunnar.

„Kannski þegar ég kemst loksins upp á hótelherbergi þá tek ég þetta út og biðst afsökunar en það eru sex-sjö tímar í það,“ segir hann að lokum.

#ekki #færsluóður #höfundur #man #miðaldra


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951999d/faersluodur-mid-aldra-hofundur-eg-man-ekki-eftir-ad-hafa-gengid-i-thessar-gruppur-

📰 Aðrar fréttir

Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 2
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 2
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 1
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 2
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 2
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 2
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
📅 22.10.2026 👁️ 2
Harry Brook hits 202 for England against Sri Lanka in ODI tri-series
Captain Harry Brook becomes the first England batter to make a double century in a one-day international with a sensational 202 against Sri Lanka in R...
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 4
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 4
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 4
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 4
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 4
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
📅 22.10.2026 👁️ 2
Trial hears Tommy Robinson hired private detectives to find Daily Mail reporters
The political activist denies wanting to expose two Daily Mail journalists to threats of violence.
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 4
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 4
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 4
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 4
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 4
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 4
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
UK weather: Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 2
UK weather: Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office has named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...