Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi árið 1997, en Harry var þá aðeins 12 ára gamall.Prinsinn segir í viðtali hjá GQ:„Ég hef rætt það opinskátt að ein mín helsta eftirsjá í lífinu er seinasta símtalið sem ég átti við hana, hversu öðruvísi samræðurnar hefðu verið hefði ég vitað að þetta var okkar seinasta samtal. Það er ég sem þarf að lifa með þeirri eftirsjá.“
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“