Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir íbúð sem sveitarfélagið leigir af honum fyrir 1.790 pund. Hann hafnaði tilboðinu því það hefði þýtt að segja upp samningi um húsnæði fyrir fjölskyldur í viðkvæmri stöðu sem eiga á hættu að verða heimilislausar.
Tilboðið hefði aukið leigutekjur hans um 32.520 pund á ári. Fyrirtækið bauðst jafnframt til að greiða rekstrarreikninga, sveitarfélagsgjöld og viðhald.
The Sun greindi fyrst frá málinu og Daily Mail fjallar einnig um það. Tilboðin hafa vakið harða gagnrýni og áhyggjur af því að sveitarfélög geti ekki keppt við verktaka ríkisins um húsnæði fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, sem eru fremst í röðinni til að missa húsnæði sitt sem stjórnvöld leigja svo undir hælisleitendur.
Báðir aðilar greiða með almannafé
Fyrirtækið sem um ræðir heitir Clearsprings Ready Homes og sér um húsnæði fyrir hælisleitendur í Suður Englandi og Wales á grundvelli samninga við breska innanríkisráðuneytið.
Leigusalinn, sem kemur ekki fram undir nafni, leigir sveitarfélaginu Southwark þriggja svefnherbergja íbúð. Hann segir að sveitarfélagið megi aðeins greiða leigu upp að ákveðinni upphæð en Clearsprings hafi boðið tæplega þrefalt það sem sveitarfélagið getur greitt fyrir sömu íbúðir, sem svo eru nýttar til að hýsa fjölskyldur í viðkvæmri stöðu á vegum bæjarins.
Honum þyki þetta furðulegt þar sem greiðslur beggja aðila séu í raun almannafé, en munurinn sé að ríkið fjármagni annað félagið en hitt sé fjármagnað af sveitarfélaginu. Hann hafi hafnað tilboðinu vegna hættunnar sem uppsögn samningsins hefði skapað fyrir fjölskyldurnar, en óttist að aðrir leigusalar láti hærri tekjur ráða för.
Þriggja ára samningar og tryggðar greiðslur
Samkvæmt umfjölluninni býður Clearsprings leigusölum þriggja ára samninga. Fyrirtækið leitar meðal annars til eigenda húsnæðis sem sveitarfélög leigja fyrir fólk í húsnæðisvanda eða er leigt námsfólki og fólki sem hefur flúið heimilisofbeldi.
Á eigin vef auglýsir Clearsprings langtímasamninga og ábyrgist leigugreiðslur til fasteignaeigenda.
Chris Philp, talsmaður Íhaldsflokksins í innanríkismálum, kallar málið ömurlegan dag fyrir ríkisstjórn Verkamannaflokksins og sakar hana um að láta hælisleitendur ganga fyrir breskum borgurum sem þurfi á húsnæði að halda og hafi ekki í önnur hús að venda.
Ráðuneytið segir verktakann bera umframkostnað
Innanríkisráðuneytið segir greiðslur til verktakanna sem sjá um að útvega húsnæði fyrir hælisleitendur vera bundnar við umsamið hámark. Ef verktaki greiði meira en þá upphæð fyrir húsnæði beri hann þann viðbótarkostnað sjálfur, en þó er ekki tilgreint hver upphæðin er.
Ráðuneytið segir jafnframt unnið að því að hætta notkun hótela fyrir hælisleitendur til að draga úr útgjöldum.
Kostnaður við hótelin skýrir þrýstinginn á að finna annað húsnæði. Í skýrslu bresku ríkisendurskoðunarinnar frá maí 2025 kemur fram að hótel hafi tekið til sín um 76 prósent útgjalda vegna húsnæðissamninga á fyrstu sjö mánuðum fjárhagsársins 2024-2025, þótt þar byggju aðeins um 35 prósent þeirra sem fengu húsnæði í gegnum kerfið.