Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember 2026.Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA konur fyrir framlag þeirra til atvinnulífs og samfélags með FKA Viðurkenningunni, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA.
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu