Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum.
Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streymisveitu Símans, þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF og dreifingarfyrirtækis þess, ZDF Studios.
Stóri Bróðir er saga um hefnd og réttlæti. Á hverju fullu tungli er maður laminn í klessu. Gerandinn virðist sá sami í hvert sinn, svartklædd manneskja sem hverfur út í nóttina. Fórnarlömbin virðast handahófskennd í fyrstu en reynast vandlega valin: kynferðisbrotamenn sem hafa komist undan refsingu.
Þáttaröðin segir annars vegar frá blaðamanni sem tekst á við að leysa þessa dularfullu glæpi og hins vegar árásarmanninum, sem lítur á sig sem fulltrúa réttlætis sem útdeilir refsingu.
Skúli Sigurðsson vann íslensku glæpsagnaverðlaunin fyrir söguna árið 2022 og var tilnefndur til Glerlykilsins, skandinavísku glæpasagnaverðlaunanna. Ólafur Darri stýrir handritahöfundarherbergi fyrir þáttaröðina og auk hans eru í teyminu Víkingur Kristjánsson, Aníta Briem, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Teitur Magnússon.
Nýjasta nafnið til að bætast í hópinn er kanadíski leikstjórinn Kari Skogland sem er sannkallaður reynslubolti, leikstýrði seríunni The Falcon and the Winter Soldier (2021) og hefur leikstýrt stökum þáttum í seríunum The Handmaid's Tale (2017-25), House of Cards (2012-18), The Walking Dead (2010-22), The Americans (2013-18) og Boardwalk Empire (2010-14) auk margra annarra.
Tökur á þáttunum hefjast 29. október hérlendis en ekki liggur enn fyrir hvaða leikarar munu fara með hlutverk í þáttunum. Sjónvarp Símans mun sýna þættina hérlendis og ZDF sýna þá í Þýskalandi.