Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kynferðisbrot og hins vegar til að komast hjá brottvísun.Samkvæmt ákæru sem var gefin út í nóvember 2025 átti meint nauðgun sér stað á heimili brotaþola í febrúar árið 2022, en maðurinn er þar sakaður um að hafa nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun til þess að nauðga konu sem glímir við andlega fötlun og gat því ekki spornað við verknaðinum.
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli