Stjórnvöld í Úkraínu og í Rússlandi hafa staðfest að unnið sé að vopnahléi í bænum Oleshky í suðurhluta Úkraínu. Hvíta húsið lýsti því óvænt yfir í dag að Melania Trump forsetafrú hefði haft milligöngu um vopnahlé.
Helsti samningamaður Úkraínumanna segir í færslu á Telegram að vopnahléið taki brátt gildi. Stefnt verði að því að flytja fólk á brott á öruggan hátt.
Rússar hertóku bæinn 2022 og hafa ekki hleypt matarsendingum þangað síðan í vor. Fólk skortir mat, lyf og aðrar nauðsynjar og er farið að svelta.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa einnig staðfest vopnahléið og að það eigi að hefjast 27. október.