Vilhjálmur Bretaprins kemur fram í þætti The Graham Norton Show í dag, föstudaginn 23. október. Vilhjálmur sat í sófanum ásamt Cate Blanchett, Hannah Waddingham og náttúruverndarsinnanum Robert Irwin, en þau tengjast öll The Earthshot Prize-verðlaununum. Söngkonan og lagahöfundurinn Jorja Smith kemur einnig fram í þættinum sem var tekinn upp fyrirfram.Hinn 23 ára gamli Irwin er alþjóðlegur sendiherra The Earthshot Prize, umhverfisverðlauna sem veitt eru fimm aðilum árlega. Vilhjálmur stofnaði verðlaunin árið 2020.
Vilhjálmur prins kemur óvænt fram í The Graham Norton Show