Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp þann 20. október og birtur í dag, segir að ágreiningur málsins hafi lotið að kröfu starfsmannsins um laun síðasta mánuð hans á uppsagnarfresti hjá fyrirtækinu, eða fyrir ágústmánuð 2025. Óumdeilt sé að starfsmaðurinn, sem hafi hafið störf hjá fyrirtækinu í ágúst 2024, hafi sagt starfi sínu lausu í lok maí 2025 og uppsagnarfrestur verið þrír mánuðir.
Starfsmaðurinn hafi unnið á uppsagnarfresti í júní og júlí en óumdeilt sé að hann vann ekki í ágúst 2025 eftir að til orðaskipta milli hans og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, kom þann 31. júlí 2025. Á fundi þann dag hafi þeir rætt ágreining vegna skattafrádráttar af launum starfsmannsins og óumdeilt sé að til harðra orðaskipta kom sem leiddi til þess að starfsmaðurinn yfirgaf vinnustaðinn. Mennina tvo greini á hinn bóginn á um ástæður þess að starfsmaðurinn gekk út.
Í niðurstöðukafla dómsins segir að framkvæmdastjóranum hafi tekist að sanna að starfsmaðurinn hafi sagst ætla að rífa af yfirmanni sínum höfuðið, eða að minnsta kosti ýjað að því, og þannig haft í frammi hótanir um ofbeldi í hans garð.
Þá liggi fyrir að starfsmaðurinn hafi hreytt í yfirmanninn frekari ókvæðisorðum, meðal annars með því að kalla hann „fávita“ og „fat piece of shit“. Sú háttsemi hafi af hálfu starfsmannsins sem starfsmanns fyrirtækisins verið verulega ámælisverð og falið í sér svo gróft brot gegn trúnaðarskyldu samningssambands aðila að réttlætt hafi fyrirvaralausa riftun fyrirtækisins án frekari aðvörunar.
Fréttamaðurinn hafi þannig firrt sig rétti til launa síðasta mánuð sinn á uppsagnarfresti.