Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, samkvæmt tilkynningu Hvíta hússins. Það á að taka gildi 29. október.
Rússar hertóku bæinn 2022 og þaðan hafa borist fregnir af skelfilegu ástandi. Fólk hefur lýst því sem helvíti á jörðu. Rússar hafa setið um bæinn og varla hleypt mat þangað síðan í maí. Fólk hefur soltið og neyðst til að leggja sér gras til munns. Rússneskir hermenn eru sakaðir um að hafa skotið fólk á götum úti. Allt í kringum bæinn eru árásardrónar og jarðsprengjur og því hefur fólk ekki getað flúið.
„Bæði ríkin hafa samþykkt að hætta öllum hernaði tímabundið í Oleshky til að hleypa neyðaraðstoð að og undirbúa brottflutning almennra borgara,“ segir í tilkynningu Hvíta hússins.
Um 24.000 manns bjuggu í Oleshky fyrir innrásarstríð Rússlands. Talið er að um 2.000 manns séu innlyksa þar. Haft er eftir forsetafrú Bandaríkjanna í tilkynningu Hvíta hússins að ástandið í bænum sé alvarlegt. Íbúar þurfi sárlega á læknisaðstoð að halda, sem og lyfjum, mat og hreinu vatni.
Stjórnvöld í Úkraínu og Rússlandi hafa ekki tjáð sig um málið. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti á dögunum einhliða yfir orkuvopnahléi sem hvorki Rússland né Úkraína virtust hafa skipulagt. Úkraína hætti árásum á orkuinnviði í nokkra daga en Rússar ekki.