Guðjón Heiðar Valgarðsson, oft kenndur við hlaðvarpið Álhattinn, sakar fjölmiðla um að boða hugmyndafræði sem heilagan sannleik og úthrópa þá sem andmæla. Hann segir Morgunblaðið ekki undanskilið og kallar eftir því að stjórnmálamenn bjóði fjölmiðlaklíkum byrginn.
„Rót vandamála okkar í dag eru fjölmiðlarnir. Ef þeir myndu vera bara svona sirka hlutlausir þá myndi þetta hætta,“ skrifar Guðjón í færslu á Facebook.
Hann segir fjölmiðla eiga að kynna ólík sjónarmið og rökin að baki þeim. Þess í stað sé „últrawoke gospelið“ borið fram sem heilagur sannleikur og andstæðum rökum lýst sem hættulegum lygum eða guðlasti.
Segir fjölmiðla hafa snúið viðhorfum fólks við
Guðjón heldur því fram að fjölmiðlar hafi fyrst kynt undir ótta við íslam til að afla stuðnings við stríð í Mið-Austurlöndum en síðar snúið viðhorfum sama fólks við þegar kom að móttöku íslamista á Vesturlöndum.
„Á minni ævi hef ég séð þau móta þennan hóp eins og leikskólaleir.“
Hann tengir þessar meintu stefnubreytingar þeirri kenningu sinni að klíka vinni að því að rústa vestrænum lýðræðisríkjum og koma síðar á alræðisheimsstjórn.
Guðjón segir jafnframt suma fjölmiðlaneytendur svo háða staðfestingu stærstu miðlanna að hvorki tölfræði né gögn dugi til að fá þá til að endurskoða afstöðu sína.
Vill að stjórnmálamenn bjóði klíkunum byrginn
Gagnrýnin beinist einnig að Morgunblaðinu.
„Á meðan siðblindir og/eða sturlaðir aktivistar ráða ríkjum á þessum fjölmiðlum (og þar er mbl ekki undanskilið, með einstaka undantekningum) þá heldur fólk áfram að vaða í villu.“
Guðjón telur hugmyndafræðilega einokun á fjölmiðlamarkaði ógna lýðræðinu. Hann kallar eftir hugrökkum röddum í stjórnmálum sem tryggi að samkeppnislögum sé fylgt eftir, jafnt í fjölmiðlun sem öðrum atvinnugreinum.
Í lok færslunnar kynnir hann fyrirhugaða YouTube rás sína, Contesting Context. Þar segist hann ætla að fjalla á ensku um þessi málefni og veita íslenskum og erlendum fjölmiðlum aðhald.