Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósent milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá niðurstöðum könnunarinnar í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Samfylkingin nýtur sem fyrr mestra vinsælda af öllum stjórnmálaflokkum landsins. 28,6 prósent segjast myndu kjósa hann nú, rúmlega prósenti meira en í síðasta mánuði.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn eru einu flokkarnir sem mælast með meira en 14 prósenta fylgi.
Munurinn á fylgi flokkanna eykst milli mánaða. Það gerðist líka í síðustu könnun Maskínu og í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups.
Litlu munar á Miðflokknum sem fengi 13,4 prósent og Viðreisn sem fengi 11,4 prósent samkvæmt könnuninni.
Framsóknarflokkurinn er síðasti flokkurinn sem væri öruggur um sæti á þingi samkvæmt könnuninni. Hann fengi 7,9 prósent.
Flokkur fólksins, Vinstri græn og Sósíalistaflokkurinn eru undir fimm prósenta viðmiðinu sem er forsenda fyrir því að fá uppbótarsæti. Þeir flokkar næðu því aðeins inn á þing ef þeir fengju kjördæmakjörinn þingmann. Flokkur fólksins og Vinstri græn eru þó rétt undir mörkunum. Píratar mælast einnig utan þings en væru mun fjær því en hinir flokkarnir að ná kjöri.