Að minnsta kosti tveir eru látnir og 25 er saknað eftir þessar drónaárásir.
Tíu Úkraínumenn og þrír Aserar eru í áhöfn skipsins en verið var að sigla því frá Tyrklandi til Sulina í Rúmeníu. Skipið, sem heitir Khoryv og er skráð í Comoros, var statt rúma tuttugu kílómetra austur af Costanta þegar því hvolfdi.
Óljóst er hvort skipið sé sokkið eða ekki. Myndefni sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir það mara í hálfu kafi í morgun. Yfirvöld í Rúmeníu sögðu líklegt að skipið myndi sökkva en veður hefur gert björgunarstörf erfið.
A commercial ship flying Comoros flag sank near Romanian territorial waters after a drone attack in the Black Sea, 24 km off Constanta. Of the 13 crew, 10 Ukrainian and 3 Azerbaijani, nine were rescued, one died, and three remain missing. https://t.co/mMfsTxmsux
— WarTranslated (@wartranslated) October 23, 2026
Rússar hafa gert árásir á þó nokkur flutningaskip á svæðinu, innan efnahagslögsögu Rúmenía og Búlgaríu, NATO-ríkja, á undanförnum dögum. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru árásirnar orðnar að minnsta kosti sjö í þessum mánuði. Þetta yrði þá áttunda árásin.