Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi

Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi

Mikill áhugi á rjúpnaveiði og rjúpnastofninn sá sterkasti í áratugi

Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það merki um áhugann og stemninguna hjá rjúpnaskyttum fyrir veiðitímabilið sem hófst í morgun.

Námskeiðin eru bæði ætluð fyrir fyrir nýliða sem eru að fá skotvopnaréttindi í fyrsta sinn, en einnig fyrir byssueigendur sem eru að sækja sér veiðikort sem allir þurfa að hafa til að mega ganga til veiða á Íslandi.

„Það er um 20% aukning á námskeiðinu frá því í fyrra og við teljum það náttúrulega bara vera af því að rjúpnastofninn er mjög stór í ár og menn eru spenntir að fara. Og eins og Íslendinga er siður þá gera þeir allt á síðustu stundu þannig að menn eru að drífa sig að klára þetta til að komast á veiðar.“

Konum fer fjölgandi í hópi veiðimanna en yngsta fólkið sést ekki

Það er hending, segir Áki, að á þessum námskeiðum sjáist fólk um og yfir tvítugt en í þeim aldurshópi sé afar lítill áhugi fyrir skotveiði. Og þeir sem ganga til rjúpnaveiða núorðið eru mun færri en fyrir tveimur til þremur áratugum.

„Þegar ég byrjaði í þessu fyrir 20–30 árum síðan þá voru svona 600–700 manns að fara í gegnum kerfið á hverju ári. Í fyrra voru það 250 og kannski verða 300 núna í ár og þegar ég byrjaði í þessu þá voru kannski að koma inn tvítugir strákar sem voru búnir að bíða í þrjú ár eftir að komast á námskeið til að geta farið að veiða rjúpu löglega. En núna er þetta meira svona félagsþrýstingur frá ættingjum eða vinnufélögum eða öðrum félögum. Þannig að fólk er kannski svona um þrítugt, fertugt að koma inn núna inn á námskeiðin, í meira mæli. Og það er náttúrulega meira konur líka núna, það eru um 20% konur sem koma inn.“

Borgarsamfélagið og breyttir siðir hjá ungu fólki, segir Áki að sé ástæðan fyrir þessu áhugaleysi á skotveiði og tíðarandinn í dag sé allt annar en áður. „Við erum að færast úr sveit í borg þannig að þessi tengsl við náttúruna eru að rofna. Þannig að menn voru aldir upp kannski við það úti í sveitinni að fara með foreldrum sínum eða ættingjum á veiðar frá blautu barnsbeini. En núna er það að rofna, þetta er meira þegar að fólk er komið inn í einhver svona veiðimannasamfélög eða giftast inn í þau eða eitthvað slíkt að þá kemur frumkvæðið að fara að veiða.“

Rjúpnastofninn sá stærsti frá upphafi formlegra rannsókna árið 1981

Rjúpnastofninn í ár er sá stærsti frá upphafi rannsókna sem hófust fyrir 45 árum eða árið 1981. Það sýna rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar á Norðausturlandi í sumar en gögn sýna að vísitala varpstofnsins var 14,1 karri á ferkílómetra og líklega þurfi að fara liðlega 70 ár aftur í tímann til að finna stærri rjúpnastofn í þessum landshluta. Viðkoma rjúpunnar, eða ungar sem komust á legg, var þó í meðallagi miðað við fyrri ár.

Nú verður í þriðja sinn veitt samkvæmt fyrirkomulagi sem tekið var upp haustið 2024 - þar sem landinu er skipt í sex veiðisvæði og veiðitíminn mislangur. Hann er stystur á Norðvestur- og Suðurlandi eða til 17. nóvember, Vestfirðingar mega veiða til 24. nóvember, á Norðaustur- og Vesturlandi nær tímabilið til 1. desember og á Austurlandi eru flestir dagar og má veiða til 22. desember.

Vildu lengja veiðitímann í öllum landsvæðum til að meta veiðiálagið á stofninn

Áki kallar þetta aðlögunarstjórnkerfi sem eigi að aðlaga og stýra samkvæmt þeim gögnum sem aflað er á meðal veiðar standa yfir.

„Það er til dæmis eitt nýtt en veiðimönnum fer fækkandi um 4% á hverju ári og það er einhver faktor sem þarf þá núna að fara að reikna inn í kerfið. Af því að menn halda dálítið að veiðisvæðin séu reiknuð út þannig að þetta sé bara stofnstærðartölur, sem er ekki. Þetta er reiknað út frá því hvað veiðisvæðin eru stór, hversu margir fara til veiða á svæðinu og líka hversu stór stofninn er og hversu mikið veiðiálag hann þolir.“

„En það sem hefur vantað inn í þetta kerfi er að við erum bara með gögn frá því að veiðidagarnir voru frá 9 til 15 eða 16. Það vantar þessi lengri veiðitímabil þannig að við vorum að gera þá tillögu að núna yrði tækifærið notað, af því að stofninn er svo stór, að hafa bara 45 daga um allt land og fá inn þessi löngu veiðitímabil til þess að fá að testa kerfið. En því miður virðist vera sem að það sé ekki alveg vilji fyrir því og það þykir okkur miður.“

Veiðimenn segjast þurfa 8 til 12 rjúpur og þá nægir einn veiðidagur

Sem fyrr er sölubann á rjúpu og kannanir meðal veiðimanna hafa sýnt að meðalveiðin er um ellefu rjúpur á mann, sem Áki segir að sé um það bil einn veiðidagur.

“Já, við höfum líka spurt hjá þeim: Hvað þurfið þið margar rjúpur? Og það er dálítið skemmtilegt að segja frá því að eftir að búið er að gera þetta í fjögur til fimm ár þá er alltaf sama svarið. Það er svona í kringum 8 til 12 rjúpur sem menn þurfa á að halda. Og það er svona eitthvað sem maður bara sér í veiðitölum. Þetta er veiðin sem menn eru að ná í og það ætti náttúrulega að nást mjög auðveldlega núna þetta árið. Það ætti jafnvel að duga bara einn veiðidagur, því miður.“

„Og það var nokkuð umdeilt og mikið umtalað þegar var sett sölubann á rjúpu, en það heldur eða hvað?“

„Já, það virðist halda mjög vel. Vegna þess að veiðitölur sýndu að veiðin minnkaði um helming við sölubannið og það dugði alveg til þess að draga úr ásókninni í rjúpur. Og þetta hefur bara gengið mjög vel og núna er stofninn það stór að allir ættu að fá sitt og hann verður líklega stór aftur næsta ár. Þannig að þetta bara virkar mjög vel eins og staðan er í dag.“

„Það fara allir sem vettlingi geta valdið fyrsta daginn“

„Það er alltaf mjög mikill spenningur og það fara eiginlega næstum því allir sem vettlingi geta valdið fyrsta daginn, nema veðrið bara hamli því sko. Og það er kannski annað heldur en gæsaveiðin þar sem menn eru kannski að draga það að fara á gæsina þegar menn vilja ekki hafa blóðið upp fjaðrir og kannski hafa hana aðeins þykkari þegar þeir skjóta hana. Þannig að það er muninn á þessu tvennu.“

„Er þá viðbúið að þessi stóri rjúpnastofn og fjöldi veiðimanna haldist í hendur og það verði margir á ferðinni næstu vikur?“

Ég geri ráð fyrir því og þetta verði svona 4 til 5 þúsund manns sem er svona með því mesta sem fer á rjúpnaveiði hverju hausti.

„Og heldurðu að áhuginn á veiðinni og fjöldi veiðimanna fari upp á við aftur. Er þetta að aukast aftur að einhverju marki?“

„Ég er svona frekar svartsýnn á það. Það bara sýna öll gögn í Evrópu og annars staðar að veiðimönnum fer hlutfallslega fækkandi, það væri gott að þeir næðu að halda í horfinu. Við erum náttúrulega veiðimannaþjóð og þetta er hefð hjá okkur og menningararfur og ég vona að hann haldist eins lengi og land byggist, en náttúrulega innan hóflegra marka.“

#mikill #rjúpnastofninn #rjúpnaveiði #sterkasti #áhugi


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-23-mikill-ahugi-a-rjupnaveidi-og-rjupnastofninn-sa-sterkasti-i-aratugi-490716

📰 Aðrar fréttir

Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
📅 23.10.2026 👁️ 1
Tillögur Lóu að ógnvekjandi búningum á hrekkjavökunni - Sjáðu myndina
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasöguhöfundur, teiknari, tónlistarmaður og einn meðlima hljómsveitarinnar FM Belfast, er afkastamikil. Og reglulega birti...
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
📅 23.10.2026 👁️ 1
Back to the Future hefði getað orðið allt önnur mynd – Sjaldséðar upptökur af upprunalega leikaranum í hlutverki Marty McFly
Kvikmyndin Back to the Future kom út árið 1985, mynd sem er löngu orðin klassík meðal kvikmyndaunnenda. Tvær myndir fylgdu í kjölfarið árin 1989 og 19...
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
📅 23.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli
Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir ...
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
📅 23.10.2026 👁️ 1
Segir stórvaxinn nýliða í landsliðinu sýna árangur starfs Aþenu - „Núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri“
Í morgun var tilkynnt um hvaða 15 leikmenn hafa verið valdir í leikmannahóp A-landsliðs kvenna í körfubolta fyrir þrjá leiki í undankeppni Evrópukeppn...
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvíta húsið segir Melaniu Trump hafa samið um vopnahlé í Oleshky
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Ú...
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Nú má heita eftir per­sónu í Hringa­dróttins­sögu - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði voru kvenkynsnafnið Ýsafold og karlkynsnafnið Ceaser. Nafnið Ýsafold uppfyllti ekki skilyrðið um að hafa unnið sér hefð...
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Beiðni skóla­stjóra kveikti hörð orða­skipti í Hafnar­firði - Vísir
Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, fór yfir fyrirhugaðar öryggisúrbætur þegar málefni skólanna voru...
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
📅 23.10.2026 👁️ 1
Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu
Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sí...
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
📅 23.10.2026 👁️ 1
Two arrested over smuggling endangered animals in Gran Canaria
Two people have been arrested in Gran Canaria on suspicion of involvement in an international network trafficking protected wildlife between South Ame...
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
📅 23.10.2026 👁️ 1
„Ef ég hefði vitað hvernig heimurinn liti út í dag, hefði ég ekki eignast börn“
Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamála...
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“ - Vísir
Vísir greindi frá því í gær að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hefðu lagt fram tillögu á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að ...
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
📅 23.10.2026 👁️ 1
Siglfirðingar bíða seinni sýnatöku og sjóða neysluvatn á meðan
E.coli-gerlar greindust í neysluvatni á Siglufirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Sýnið var tekið 19. október og ni...
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Ráðast í út­tekt eftir að starfs­maður lenti í al­var­legu vinnu­slysi - Vísir
Slysið varð í lok september í tengivirki Landsnets við Vatnshamra í Borgarfirði. Þetta staðfestir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá ...
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé - Vísir
Hvíta húsið segir að bæði Rússar og Úkraínumenn hafi samþykkt vopnahlé í og við bæinn. Þannig á að vera hægt að koma íbúum til aðstoðar og undirbúa br...
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hvetur skólastjóra til að fara í stríð við menntamálaráðherra
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, hvetur skólastjóra til að standa gegn fyrirhuguðum breytingum Ingu Sæla...
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Melania Trump brokers truce for Ukraine city 'on brink of disaster', White House says
Ukraine and Russia have not confirmed the truce in Russian-occupied Oleshky, where residents have had to eat garden weeds to survive.
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
📅 23.10.2026 👁️ 1
Why Cocktail Culture is becoming part of Tenerife’s Premium Tourism offer
Tenerife has long been associated with sunshine, beaches, volcanic landscapes and resort holidays. But the island’s tourism identity is becoming more ...
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
📅 23.10.2026 👁️ 1
Þjáður af sektarkennd yfir því að hjónabandið gekk ekki upp
Ingrid Seward ræddi samband Karls Bretakonungs, sem þá var krónprins, við Díönu prinsessu, í beinni upptöku á hlaðvarpi tímaritsins Hello, A Right Roy...
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Kæra umdeilda uppbyggingu veislusalar á Álftanesi - Sagður brjóta í bága við skipulag og hafa verið rekinn í leyfisleysi
Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusa...
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Ætla að blása til sóknar í bóka­söfnum borgarinnar - Vísir
Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var fr...
Hestvagnar bannaðir í Central Park
📅 23.10.2026 👁️ 2
Hestvagnar bannaðir í Central Park
Borgarstjórn New York samþykkti í gær lög sem banna hestvagnaferðir um Central Park. Bannið tekur gildi í júní 2028. Boðið hefur verið upp á ferðir um...
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
📅 23.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell University rape inquiry in 'constant fear', lawyer says
The woman, known anonymously as Jane Doe, alleged she was drugged and raped by several men on Cornell's campus.
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova - Vísir
„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttas...
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
📅 23.10.2026 👁️ 2
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur
Lögreglan svarar ekki lykilspurningum um mál Öldu Káradóttur Fréttin23. október 2026InnlentLeave a Comment Samsett mynd: Mæðginin Jónas Friðriksson og...
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 1
Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar - Vísir
Leitað var eftir svörum um málið hjá bæjaryfirvöldum sem segja að á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni tjái þau sig ekki um efnisatri...
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Loka“ Vestur­bakkanum eftir á­rás á her­menn - Vísir
Árásarmennirnir tveir voru báðir felldir af hermönnum eftir um tuttugu mínútna skotbardaga en yfirvöld í Ísrael segja að komið hafi verið í veg fyrir ...
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
📅 23.10.2026 👁️ 2
Markle rýfur þögnina um meint brot föður síns
Meghan Markle hefur tjáð sig vegna ásakana um vörslu barnakláms sem beint er að föður hennar, Thomas Markle eldri. Það var sonur hans, Thomas Markle y...
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Þórður Snær tætir í sig reiknivélina: „Einfaldlega best að sleppa Framsókn“
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að niðurstöður úr nýrri reiknivél Framsóknarflokksins byggi á „snargölnum ...
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Álhatturinn“ Guðjón Heiðar segir fjölmiðla móta fólk eins og leikskólaleir
Guðjón Heiðar Valgarðsson, oft kenndur við hlaðvarpið Álhattinn, sakar fjölmiðla um að boða hugmyndafræði sem heilagan sannleik og úthrópa þá sem andm...
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi
Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann ...
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
📅 23.10.2026 👁️ 2
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum
16 látnir og 76 slasaðir eftir öflugan jarðskjálfta í Tíbet – yfir 12.000 fluttir frá heimilum sínum Fréttin23. október 2026ErlentLeave a Comment Mikl...
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
📅 23.10.2026 👁️ 2
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, state media say
Another 10 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
📅 23.10.2026 👁️ 1
Seven shot dead by gunmen at church funeral in Jordan, government says
Another 28 people are injured in the southern Karak governorate, and a manhunt is now under way.
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna
Trump lýsir innflutningi vindmylla ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna Fréttin23. október 2026Innlent, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjafors...
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
📅 23.10.2026 👁️ 2
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki“
„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um ví...
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
📅 23.10.2026 👁️ 2
Holidaymaker attacked and left unconscious after attempted mugging in Playa de las Américas
A tourist was knocked unconscious after being hit on the head during an alleged attempted robbery in Las Verónicas, southern Tenerife, in the early ho...
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum - Vísir
Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á lei...
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Fresturinn liðinn en enn ó­samið við flug­virkja - Vísir
Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomu...
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
📅 23.10.2026 👁️ 3
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins
„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í ...
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósent milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá ni...
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Drógu vélar­vana skútu til hafnar - Vísir
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að útkallið hafi borist um klukkan sex í gær. Áhöfn skipsins Hafdísar SK kom fólkinu á skútunni til aðstoðar á vet...
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
📅 23.10.2026 👁️ 3
Zombies to take over Tenerife for Halloween parade
Zombies, monsters and other creatures will take over La Laguna’s historic centre on Saturday 31st October as the Isla Calavera Zombie Walk returns for...
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Telur dómarann van­hæfan vegna starfa í slitastjórn - Vísir
Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dóm...
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
📅 23.10.2026 👁️ 2
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
Íbúar á landsbyggðinni hafa frá árinu 2020 getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem...
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
📅 23.10.2026 👁️ 2
Elliði gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir mynd
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, gerir stólpagrín að sjálfum sér og birtir háðslega mynd á samfélagsmiðlum en hann var í eldlínunni í vikunni f...
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 2
Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í október mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 28,6 prósenta fylgi. Flokkurinn bætir ...
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
📅 23.10.2026 👁️ 2
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið
„Það að tala um byggingu fangelsis sem eitthvað hefðbundið húsnæðisverkefni hjá ríkinu er ekki hægt,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dóms...
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
📅 23.10.2026 👁️ 2
Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember
Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í m...
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
📅 23.10.2026 👁️ 3
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar
Trump og hrun frjálslyndu miðjunnar Fréttin23. október 2026InnlendarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Frjálslynda miðjan er hrunin segir fors...
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
📅 23.10.2026 👁️ 2
Vonast til að nýtt dýralæknanám bæti mönnun á landsbyggðinni
Skortur hefur verið á dýralæknum um hríð, sérstaklega á landsbyggðinni. Meðal annars hefur vantað dýralækni allt frá Kirkjubæjarklaustri austur að Bre...