„Það að tala um byggingu fangelsis sem eitthvað hefðbundið húsnæðisverkefni hjá ríkinu er ekki hægt,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu.Í vikunni var tekin skóflustunga að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni. Framkvæmdinni við Stóra-Hraun er skipt í tvo áfanga. Fyrri áfanginn er fullfjármagnaður og er áætlaður kostnaður um 17,8 milljarðar. Þar verða almenn fangarými fyrir 56 fanga, skólabygging, ein vinnustofa, vöruhús og aðalbygging. Þegar fangelsið er fullbyggt verða þar 128 afplánunarrými.
Þess vegna kostar Stóra-Hraun svona mikið