Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þeir fluttir á brott með stórum bíl. Töluverð umferð var á svæðinu enda verslunarmiðstöðin vinsæl. Hestarnir dvelja alla jafna ekki í verslunarmiðstöðinni en þeir voru þar fyrir helgi í auglýsingaskyni.
Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð - Vísir